Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 48
48 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
brögð hjá landsmönnum, nokkuð sem hafði ekki sést áður á eynni. Verkið
snerti vissulega viðkvæman streng í þjóðarsálinni, þ.e. hvernig landsmenn
tóku innrás Bandaríkjanna 1898. Saga López Nieves fjallar um innrás Banda-
ríkjamanna í bæinn Seva í maí 1898 og segir íbúa hafa varist hetjulega gegn
herforingjanum Nelson A. Miles og mönnum hans allt þar til í ágúst þegar
innrásarmönnum barst liðsafli. Þá tókst þeim að sigrast á íbúum og jafna
bæinn við jörðu. Samkvæmt sögu López Nieves var bærinn þurrkaður út, íbúar
drepnir, og núverandi herstöð sem heitir Roosevelt Roads reist þar ofan á,
nálægt bænum Ceiba sem allir landsmenn þekkja.7 Aftur á móti segir hin
opinbera saga að innrásin hafi átt sér stað í júlí á allt öðrum stað á eynni, í
bænum Guánica þar sem andspyrna eyjarskeggja takmarkaðist við skæru-
hernað, og að þeir hafi í raun upp til hópa tekið á móti Bandaríkjamönnum
nokkuð vinsamlega og séð þá sem frelsara sína sem gætu komið þeim undan
nýlendu oki Spánverja, sömuleiðis bandamenn sína í því að koma á lýðræði í
anda Bandaríkjanna.
Margir lesendur blaðsins Claridad, sem er einkum málgagn sjálfstæðissinna
og menntamanna, létu blekkjast og trúðu sögu López Nieves. Fréttin barst út
sem eldur í sinu. Símalínur blaðsins glóðu, sagan var ljósrituð um allt og flaug
manna á milli, fólk hittist og las söguna saman. Sagnaljóð og sönglög urðu til,
krossar voru reistir við Roosevelt Roads-herstöðina, þar sem bærinn Seva stóð
fyrrum samkvæmt sögu López Nieves, og víða sáust slagorðin „Seva vive“ eða
„Seva lifir“. Fólki þótti sem þarna væri loksins komin upp á yfirborðið hin rétta
saga sem yfirvöld hefðu haldið leyndri fram að þessu. Loksins var komin fram
hetjusaga þjóðarinnar. En hængurinn á öllu saman var sá að sagan var hugar-
burður López Nieves – þetta var skáldskapur, en þó ekki nema að hálfu leyti.
Það er erfitt að flokka þetta stutta verk López Nieves; það er smásaga þótt
ekki sé í hefðbundnum skilningi því hér er söguleg frásögn í formi bréfa nokk-
urra aðila. Ýmis gögn fylgja, s.s. ljósmyndir, kort og afrit af skjölum. Sagan
hefst á bréfi höfundar sjálfs (þ.e.a.s. López Nieves) til ritstjóra Claridad. Í því
segir að eftir langa umhugsun hafi hann ákveðið að senda honum þetta bréf
ásamt meðfylgjandi gögnum. Gögnin tengjast rannsókn vinar hans, sagnfræð-
ings og kennara við Interamericana-háskólann á Púertó Ríkó, Victors Cab-
añas, sem nú sé horfinn sporlaust. Rannsóknir hans snúist um áður óþekkta
innrás Bandaríkjamanna í landið nokkrum mánuðum fyrir þá sem menn
þekkja almennt og er hluti af hinni opinberu sögu. López Nieves biður ritstjór-
ann vinsamlegast að birta gögnin í Claridad sem hann og gerði. Á eftir bréfi
höfundar fylgja bréf Victors Cabañas til López Nieves þar sem hann útlistar
rannsókn sína. Einnig eru birt brot úr dagbókum herforingjans Nelsons A.
Miles með lýsingum hans á misheppnaðri innrás í bæinn Seva. Og svo fylgja
ljósmyndir, kort og afrit af skjölum. Öll bréfin og innihald þeirra er svo sann-
færandi að ekki er að furða að textinn hafi vakið fyrrnefnd viðbrögð lesenda.
Eins og fyrr sagði voru þau slík að vikublaðið sá sig tilneytt að gefa út yfirlýs-
ingu um að þetta væri smásaga, hugarburður rithöfundarins Luis López Nie-
ves. Þessum sterku viðbrögðum hefur stundum verið líkt við það þegar
TMM_3_2009.indd 48 8/21/09 11:45:31 AM