Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 111
„ É g e r l í f , s e m v i l l l i fa , u m va f i n n l í f i s e m v i l l l i fa .“ TMM 2009 · 3 111 setningin er sérrómversk-kaþólsk og er um óflekkaðan getnað Maríu (sett af Píusi IX 1854). Hún á að tryggja þá hugmynd að María sé laus undan erfðasynd og verknaðarsynd. Sú fjórða fjallar um himnaför Maríu og gerir að trúarkenningu að María sé leyst undan dauðastríði og dauða (sett af Píusi XII, 1950). Þegar Maríufræði rómversk-kaþólsku kirkjunnar eru athuguð koma í ljós náin tengsl þeirra við valdakröfur kirkjunnar og óskeikulleika páfa. Mætti segja að María tryggi, samkvæmt þessari kenningu, hjálpræði Jesú Krists jafnt á jarðvistardögum hans og síðan innan kirkjunnar. Rómversk-kaþólska kirkjan, með páfann í fararbroddi, á að tryggja nálægð hjálpræðisins innan stofnana sinna. Almennt er talið innan fræðanna að páfi hafi sett kennisetninguna um óflekkaðan getnað Maríu (1854) öðrum þræði til að undirbúa kennisetningu um óskeik- ulleika páfa (1870) og sé himnaför Maríu (1950) einnig sett henni til staðfestingar. Um þessi tengsl milli kirkju- og Maríufræða innan róm- versk-kaþólsku kirkjunnar hefur mikið verið fjallað. Menn hafa gagn- rýnt hvernig valdakröfur páfa eru settar fram með hjálp Maríufræð- anna.16 Þegar bók Bjarna Endurkoma Maríu er lesin er greinilegt að hann vinn- ur með þekkt stef úr þessari arfleifð. Bjarni tekur afstöðu með Maríu- mynd guðspjallanna og hafnar þeirri tvíhyggju og stofnunarvæðingu sem hafa verið fylgifiskar Maríudýrkunarinnar. Þegar í fyrsta kafla staðsetur Bjarni lesandann í miðri deilu milli tveggja stefna. Þeirri fyrri tilheyra þeir sem telja kirkjuna vera stofnun valds og mennta, en emb- ættismenn hennar standa síðan vörð um að svo sé. Bjarni nýtir sér hér minni úr rómversk-kaþólskri arfleifð og hugmyndir sem þróuðust innan kristninnar í tengslum við meinlætalifnað og einlífi. Eins og áður er getið kemur fram í þeim fjandsamleg afstaða til líkama og losta. Hin stefnan bindur vonir sínar við innileika trúarinnar og frelsi sem kemur fram í virðingu fyrir lífinu, fjölbreytileika þess og þörfum. Bjarni rekur sig þannig áfram eftir meginþemum Maríufræðanna. María á sér sinn forboða eða spámann líkt og Jesús Kristur í guð- spjöllunum. Afi sögumannsins og fjöllistamannsins Mikaels, Jóhannes frá Blómsturvöllum, var prófessor við Kristsháskóla. Hann kemur fram líkt og Jóhannes skírari og boðar í frægum fyrirlestrum endurkomu Maríu. Eyðimörkin sem prófessor Jóhannes predikar í er háskólasamfé- lagið og hann segir: „Ég er draumþokan sem rignir orðum guðs með eld- ingarraust […] Þá birtist hún sem er hjarta biblíunnar þótt um hana séu þar fæst orðin“ [skáletrað í texta] (EM 6). Stofnunin bregst hart við og TMM_3_2009.indd 111 8/21/09 11:45:37 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.