Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 112
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
112 TMM 2009 · 3
Jóhannes missir embætti sitt og sest að á sveitasetri sínu Blómsturvöll-
um.
Bjarni nýtir sér einnig dogmað um óflekkaðan getnað Maríu og setur
möguleika þess fram með eftirfarandi hætti:
Nei, sjáðu til. Þau [foreldrar Maríu] voru lengi búin að reyna árangurslaust að
eignast barn, þangað til mamma fór til kvensjúkdómalæknis. Hann sagði að
eggjastokkarnir í henni væru ónýtir og þá fór hún í eggjaígræðslu en fékk ekki
að vita hvaðan eggið kom til að ekki sköpuðust erfiðleikar síðar. Samt gerðist
ekkert. Þá fór pabbi í athugun og komst að því að sæðið í honum væri ónýtt.
Eftir það fékk mamma nýtt óþekkt egg með sæði úr sæðisbanka, en fékk ekki
að vita hver átti sæðið, enda var því ruglað þannig að læknarnir vissu það ekki
einusinni sjálfir. (EM 60)
María elst upp hjá „fósturforeldrum“ sínum og eftir lát móðurinnar hjá
föðurnum. Lífsferillinn er sem spegilmynd lífshlaups Jesú frá Nasaret.
Bjarni tekur einnig fyrir hugmyndina um fullkomleika Maríu sem kall-
ast á við hugmyndina um syndleysi Jesú. Maríu verður um fermingu
ljóst að hún á sér ekki spegilmynd og tjáir föður sínum það. Hann
útskýrir það með eftirfarandi orðum: „Vegna þess að spegilmynd er
alltaf öfug mynd af því sem er ekki jafnt og rétt. En hið fullkomna form
getur ekki átt öfuga mynd. Form þín eru fullkomin og ef þú sæir mynd
þína þá væri það ekki spegilmynd heldur eftirmynd“ (EM 19).
Bjarni grípur einnig til sögunnar úr Lúkasarguðspjalli um Jesú 12 ára
í musterinu sem ræddi þar við fræðimenn sem „furðuðu sig á skilningi
hans og andsvörum“ (Lk 2.47). María er aftur á móti 21 árs að klára
doktorsritgerð í guðfræði við Kristsháskóla. Þannig lætur Bjarni sögu
sína spegla sig í efni Nýja testamentisins. Endurkoman verður að endur-
komu Maríu. Jóhannes kemur fram sem spámaður beggja. María er alin
upp af föður sínum en Jesús af móður. Merkilegt er einnig að lærimeist-
ari Maríu við doktorsnámið ber nafnið Pétur eins og einn af lærisvein-
um Jesú.
Bjarni snýr sér nú að nokkrum hefðum innan Maríudýrkunarinnar.
Hann andmælir öllum kenningum um Maríu sem himnadrottningu
með því að tengja líf hennar við þrá hennar eftir hinu hversdagslega, við
líkama og losta. Í þessu samhengi leikur Bjarni sér með vangaveltur um
fullkomleika Maríu. Hann er slíkur að ekkert getur höndlað hann, allra
síst stofnanir. Þess vegna hverfur allt sem hún skrifar. Skjölum og opin-
berum pappírum er um megn að geyma nafn hennar eða upplýsingar
um hana. Jafnvel á ljósmyndum mást útlínur hennar burt. Hún rennur
úr greipum alls sem snýr að stofnunum og valdi þeirra. Ekkert getur
TMM_3_2009.indd 112 8/21/09 11:45:37 AM