Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 114
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
114 TMM 2009 · 3
safnaðarins og allra kúgaðra. Margar kirkjur eru nefndar í höfuðið á
honum og einn dagur kirkjuársins, 29. september, er tileinkaður
honum.19
Mikael skáldsögunnar er fjöllistamaður í sirkus. Hann er vel að sér í
heimi blekkinga og þekkir vel til allra tæknilegra þátta varðandi sjón-
hverfingar. María gerist aðstoðarmaður Mikaels í sirkus hinnar guð-
dómlegu reglu. Í samskiptum þeirra takast á blekking og sannleikur,
sjónhverfing og fullkomleiki (EM 44–45; 54–59). Heimar andstæðna
mætast og úr verður ástarsaga. Mikael verður æ ljósara að ekki einungis
fólkið heldur einnig hann sjálfur þolir betur blekkingar og sjónhverf-
ingar en nálægð hins sanna og fullkomna. Sirkus Mikaels er komið fyrir
í litlum skáp á hjólum. Hann er undratæki sem lætur brúður leika loft-
fimleika og sýna allskyns brellur. Á einni sýningunni kemur eldur upp
í tækinu, blekking tækniundursins fuðrar upp fyrir augum áhorfenda
og breytir sýningunni í helvíti. María leysir sjónhverfingar Mikaels þá
af hólmi með því að sýna hreinleika sinn sem sýningaratriði blekkingar.
Afhjúpunin heldur áfram. Mikael þarf að takast á við það að í fullkom-
leika sínum elskar María hann og vill deila með honum nóttu sem degi.
Kröfu Maríu um að vera virt sem kona getur Mikael ekki höndlað.
Hann vill halda í helgimyndina. Og þegar hann verður vitni að því að
guðleg vera ætlar að sænga hjá Maríu, en hún hafnar henni vegna Mik-
aels, þá er honum öllum lokið. Að María hafi sterkar kynferðislegar
langanir eyðileggur helgimynd tvíhyggju Mikaels (EM 80–83). Afbrýði-
semin gerir hann blindan fyrir játningu Maríu og það leiðir til svika.
Mikael breytist úr bjargvætti í Júdas. Hann segir til Maríu og selur hana
í hendur stofnunarinnar (EM 86).
Það er ekki nauðsynlegt að rekja frásögnina frekar en eins og Pétur
forðum þá iðrast Mikael og bjargar Maríu úr prísundinni. Lýsingin á
björguninni er athyglisverð. Mikael kemur fyrir línu yfir í fangelsis-
glugga Maríu, fer þangað eftir línunni og tekur hana í fangið. Hann fetar
sig eftir línunni til baka. Á miðri leið leitar María á hann og þau elskast
á línunni milli himins og jarðar. Þarna kristallast umfjöllunarefni bók-
arinnar sem er þrá Maríu eftir að vera virt sem venjuleg kona. Hún
hafnar því að vera staðsett handan mannlegs veruleika. Þessari kröfu
finnur Bjarni stað á línu sem skilur að og sameinar um leið himin og
jörð (EM 109–116). Síðar í frásögninni kemur í ljós að atburðurinn var
myndaður en vegna fullkomleika Maríu náðist einungis Mikael á film-
una. Þannig dregur Bjarni fram að í trúnni þar sem maðurinn höndlar
hið heilaga og einsemd mannsins er rofin, sjá margir einungis einveru.
Flótti Mikaels með Maríu mistókst og hún lendir aftur í höndum
TMM_3_2009.indd 114 8/21/09 11:45:37 AM