Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 22
G u ð n i E l í s s o n
22 TMM 2009 · 4
háðulegan misskilning Þorkels, sem ætlaði að veldi sitt myndi ná um
allan Breiðafjörð, mistúlkuðu þeir sem lofsungu útrásina merkin sem
blöstu við öllum sem horfa vildu og sneru svörtu í hvítt. Munurinn er sá
að þjóðin sökk með útrásarvíkingunum á meðan Þorkell fór einn niður
með sínum mönnum.
V. Stórveldi hugans
„En þá er hættan á næsta leiti, einmitt þegar allt virðist vera í sómanum,
horfur á markaðnum býsna góðar og allt sem við eigum vex í huganum“
segir Einar Már Guðmundsson í Hvítu bókinni.36 Draumveldi Þorkels
Eyjólfssonar varð honum að falli, rétt eins og „stórveldi hugans“ í háð-
ungarórum Viðskiptaráðs Íslands frá 2006 var þegar öllu er á botninn
hvolft uppskrift að þjóðargjaldþroti.
Ýmislegt bendir til þess að Íslendingar séu enn slegnir sömu stórlætis-
blindu þrátt fyrir þau áföll sem dunið hafa yfir landið á undanförnum
misserum. Við höfum enn ekki leitað skýringa á hruninu í sjálfsmynd
okkar sem yfirburðaþjóðar og hugsanlega ræður sá sjálfsskilningur
ennþá ferðinni í skýlausri kröfu almennings um að íslenska ríkisvaldið
mæti samningamönnum Breta og Hollendinga af fullri hörku í Icesave-
deilunni. Er sú afstaða mótuð af raunverulegum skilningi á stöðu okkar
í alþjóðasamfélaginu?
Vitaskuld má raunsætt mat á stöðu okkur ekki týnast niður í van-
metakennd eða óþarfa undanlátssemi í samningum við erlenda hags-
munaaðila. En alltof margir virðast þessa dagana telja að ofjarlar verði
sigraðir með oflætið eitt að vopni.
Tilvísanir
1 Winston Churchill. „Ræða í Harvard-háskóla, 6. september 1943.“ Yfirlýsingin er fengin úr
skýrslunni Viðskiptaþing: Ísland 2015. Ritstjórar: Þór Sigfússon, Davíð Þorláksson, Erla Ýr
Kristjánsdóttir, Halldór Benjamín Þorbergsson, Halla Tómasdóttir og Sigríður Á. Andersen.
Reykjavík, 2006, bls. 15. Hér eftir verður vísað til útgáfunnar með blaðsíðunúmeri aftan við
tilvitnun. Skýrsluna er hægt að nálgast í heild sinni á: http://www.vi.is/files/1612898009-
Ísland%202015%20Viðskiptaþing%202006.pdf [sótt 10. maí 2009].
2 Halldór Laxness: Kristnihald undir Jökli. Reykjavík: Helgafell, 1968, bls. 301. Útgerðarbrask-
arinn Íslandsbersi í Guðsgjafaþulu Halldórs er annar forvitnilegur forveri íslenskra útrásarvík-
inga, en honum er lýst sem svo að hann telfi „blindskák sér til skemtunar um auðæfi Íslands“.
Halldór Laxness: Guðsgjafaþula. Reykjavík: Helgafell, 1972, bls. 78.
3 Guðmundur Magnússon: Nýja Ísland – listin að týna sjálfum sér. Reykjavík: JPV útgáfa 2008,
bls. 7. Hér eftir verður vísað til útgáfunnar með blaðsíðunúmeri aftan við tilvitnun.
4 Jón Baldvin Hannibalsson: „Nýja Ísland: Vonsvikin þjóð í leit að sjálfri sér“. Lesbók Morg
unblaðsins, 29. nóvember 2008, bls. 8.
TMM_4_2009.indd 22 11/4/09 5:44:35 PM