Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 34
M a t t h í a s J o h a n n e s s e n 34 TMM 2009 · 4 II „Silja … sagði að Vilborg Dagbjartsdóttir fengi stundum hugmyndir að ljóðum án þess vinna þau, en „læsi þau síðan í ljóðabókum Matthíasar …“ Ódagsett Eftir að við komum heim hef ég haft í mörgu að snúast. Fyrst þurfti ég að lesa upp í Þjóðmenningarhúsinu við opnun ljóðlistarsýningar Lista- hátíðar. Ég las ásamt skáldunum Þorsteini frá Hamri og Vilborgu Dag- bjartsdóttur. Það gekk vel. … … Bókaáhugi á Íslandi snýst einnig einkum um hnýsni, síður um bók- menntir sem slíkar. Það sem er ekki hnýsilegt selst ekki. Lesandinn er oftast hnýsill, ekki fagurkeri. Svo líður tíminn og fólkið sem lifir í hnýsni um annarra hagi hverfur af sjónarhólinum, flestir gleymast, en þá snýst þetta við; það eitt lifir af uppgjör tímans sem vel er gert, ekki endilega það sem er hnýsilegt, heldur listavel gert. … Í tengslum við þessar hugleiðingar mætti nefna það sem ég las eftir Matthías Viðar Sæmundsson og fékk í hendur þegar ég kom heim, Gagnrýni, verðlaun og markaður, en þar segir hann m.a.: „Bókmennta- verðlaun eru hluti af margumræddri BókmenntaVél og hljóta að metast samkvæmt því. Þau eru ysta lag annars leiks sem er öllu mikilvægari, leiks stöðugrar sköpunar sem ber í sér eigin umbun eða refsingu. Verð- launaveitingar eru hvorki merkilegri né ómerkilegri en önnur gagnrýni, ein mælistika af mörgum á verðmæti, en séu þær teknar of hátíðlega þá er illt í efni. Leikur bókmenntanna verður að ValdaLeik, baráttu um stöðu innan trénaðs menningarheims. Skáldskapurinn verður við slíkar aðstæður að áhrifalausri orðræðu sem á sér það eitt markmið að við- halda sjálfri sér, sinni marklausu frægð sem tíminn étur upp jafnóðum og salirnir tæmast, þegar allar mannlegar vélar þagna og DauðaVélin tekur við.“ … En ég hef fulla samúð með þessari afstöðu, hvað sem öðru líður. Mér finnst aftur á móti alveg fáránlegur leiðari Jónasar Kristjánssonar um Halldór Laxness og Björk þegar hún fékk Gullpálmann í Cannes. Hann skrifar fjálglega um „þjóðargersemar“ og finnur engar á þessari öld nema Halldór og Björk! Hann notar tækifærið og ræðst á þá sem búa við gervifrægð í tímaritum með myndum „af borubröttu skammtímafólki“, sem er frægt fyrir það eitt að vera frægt en hefur aldrei gert neitt, sem máli skiptir. „Það fer með rulluna sína og síðan er því skipt út fyrir TMM_4_2009.indd 34 11/5/09 10:12:58 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.