Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 46

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 46
M a t t h í a s J o h a n n e s s e n 46 TMM 2009 · 4 Steinn kenndi mér á sínum tíma. Ég staðnæmdist við upptalningu á Hannesi Hafstein, Jónasi frá Hriflu, Jóni Þorlákssyni, Bjarna Benedikts- syn og Davíð Oddssyni og skoðaði nánar hvað þar var á ferðinni. Jú, Hannes er að telja upp þá sem sett höfðu mestan svip á tímabil liðinnar aldar. Þessi upptalning var að vísu ekkert merkileg. Slíkar upptalningar eru alltaf út í hött og lýsa engu nema fordómum höfundar. Það eitt var merkilegt sem vantaði í þessa upptalningu. Hannes hefur aldrei verið ánægður með Ólaf Thors af ýmsum ástæðum. Hann er líklega of mikill fulltrúi gamla Sjálfstæðisflokksins sem boðaði velferðarþjóðfélag. En hann var forystumaður stærsta stjórnmálaflokks landsins um þrjátíu ára skeið og oftar og lengur forsætisráðherra en nokkur maður annar. En hann vantaði í upptalninguna. Það var Hannesi líkt. Sem sagt, einatt er það eitt merkilegt við bækur og greinaskrif sem vantar. Ég þykist viss um að grein Hannesar sé merkilegust fyrir það að Ólafur Thors fær ekki að njóta sannmælis. Hann kemst ekki að fyrir fordómum Hannesar. Leiðtoga á ekki sízt að dæma eftir hirðinni í kringum þá. Munurinn á John F. Kennedy og Nixon var einfaldlega munurinn á hirðmönnum. Þeir segja meiri sögu en flest annað. Aðalhirðmaður Ólafs Thors var Bjarni Benediktsson. Það segir ekki sízt mikið um Ólaf Thors. Mér er til efs að nokkur maður hafi verið jafn vinsæll af samtíð sinni og Ólafur. Hann hafði meiri áhrif á umhverfi sitt en nokkur maður sem ég þekki. Hann var einhvers konar séní. Hann átti náðargáfu eins og Kjarval. Hann átti leikinn meðan hann stjórnaði Sjálfstæðisflokknum og landinu. Hann er mesti leiðtogi sem ég hef upplifað um okkar daga. Bjarni var einnig mikill leiðtogi, en hann var ekki eins vinsæll og Ólaf- ur. En hann var kannski meiri hugsuður. Bjarni taldi Ólaf merkastan allra manna sem hann hafði kynnzt um ævina. Það segir allt sem segja þarf, bæði um Ólaf og Bjarna. En hvað kemur það Hannesi Hólmsteini við? Hæstiréttur er á annarri skoðun! Og svo er eitt enn: Ólafur er skemmtilegasti stjórnmálamaður Íslend- inga á þessari öld. Dönsku blaðakonunni Ninku þótti enginn pólitíkus jafn skemmtilegur og Ólafur … TMM_4_2009.indd 46 11/5/09 10:12:59 AM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.