Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 75
Á t t r æ ð u r Ti n n i á f e r ð o g f l u g i
TMM 2009 · 4 75
Heimshornaflakkari
Ferðalög einkenna Tinnabækurnar og eitt af því sem gerði þær vinsælar
var að í gegnum sögurnar kynntust lesendur nýjum pörtum heimsins.
Eins og áður hefur komið fram hefjast ferðalögin í Sovétinu, næst fór
Tinni til Kongó og hagaði sér svo mikið eins og nýlenduherra að margir
froðufella enn, síðan til Ameríku, Egyptalands, Kína, Suður-Ameríku,
Skotlands og þaðan áfram um raunveruleg og skálduð lönd, þar á meðal
Tíbet, tunglsins og Syldavíu. Það voru þessi ferðalög sem ollu straum-
hvörfum í nálgun Hergés á sögur sínar en eftir fjórar bækur sem bjuggu
yfir misdjúpri innsýn í ólíka menningarheima lýsti höfundurinn því
yfir að næst færi Tinni til Kína. Belgískur trúboði sem hafði umsjón
með hópi kínverskra námsmanna í háskóla í Brussel brást snöggt við og
sendi Hergé bréf þess efnis að kannski væri ástæða til að huga betur að
því hvernig ókunnar þjóðir birtust í bókunum og bauð honum að hitta
ungan kínverskan listnema til að fræðast nánar um menningu Kína.
Hergé tók þessu fagnandi og bauð unga manninum heim til sín.11 Þetta
var árið 1934 og síðari heimsstyrjöldin í aðsigi með sívaxandi átökum
milli Japans og Kína. Í stuttu máli sagt olli þetta inngrip trúboðans
straumhvörfum á ferli Tinna og margir telja enn að bókin sem var
afrakstur fræðslu Tsjangs Tsjong-Jen og vaxandi vináttu þeirra Hergés,
Blái lótusinn (1934, 1936, 1946), sé besta Tinnabókin. Hergé lagðist í
mikla rannsóknarvinnu með þeim árangri að allt umhverfi og aðstæður
eru afar nákvæmar og raunsannar sem skapaði bókinni mun áhrifa-
meira andrúmsloft. Meðal annars er öll kínverska sem birtist í bókinni
rétt, en Tsjang tók þann hluta að sér og notaði tækifærið til að halda úti
áróðri gegn heimsvaldasinnum! Hergé gerði Tsjang að persónu í sög-
unni og bauð honum að vera meðhöfundur að verkinu, sem Tsjang
afþakkaði af hógværð.12 Þetta mun hafa verið í síðasta sinn sem Hergé
sýndi slíkt örlæti, en seinna brást hann öndverður við þegar aðstoðar-
menn hans óskuðu eftir því að fá nöfn sín birt.13
Fullorðin börn
Annað sem gerir Bláa lótusinn markverðan er að í sögunni er fjallað um
fullorðinsmálefni í verki sem annars taldist vera ætlað börnum. Fyrir
utan yfirvofandi stríðsátök er líka fjallað um eiturlyf og geðveiki, hryðu-
verk og pólitísk svik og ekki stóð á viðbrögðum: Japanir kvörtuðu
hástöfum meðan Kínverjar glöddust.
Á þessum tíma er myndasagan enn að fóta sig í menningarflórunni.
TMM_4_2009.indd 75 11/4/09 5:44:40 PM