Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 78
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
78 TMM 2009 · 4
legur og rökréttur heimur. Þetta birtist meðal annars í því að hlutföll og
fjarvídd er rétt – allt er hreint og beint eins og orðið hreinlína gefur til
kynna.17 Hreinlínustíllinn kemur á framfæri þeim skilaboðum að þrátt
fyrir að dularfullir atburðir hafi gerst þá sé þetta heimur raunsæis og
rökhugsunar. Velta má fyrir sér hvort stíllinn endurspegli einnig íhalds-
söm viðhorf hins kaþólska skáta.
Hinn ógurlega drykkfelldi Jeti
Á síðari tímum hefur það þó frekar verið kynhneigð Tinna (og reyndar
einnig Hergés) sem hefur verið til umræðu en eins og frægt er finnast
fáar konur í Tinnabókunum, eina konan sem á þar raunverulegt hlut-
verk er títtnefnd Vaíla og hún birtist sem hið mesta skass, þó vissulega
komi hún einnig til bjargar, eins og í Veldissprotanum þegar hún tekur
Tinna á flótta uppí bílinn sinn – en hann flýr reyndar aftur frá þeirri
björgun þegar hún byrjar að syngja. Vinátta þeirra félaga Hergés og
Tinna við Tsjang er helsta ástæða meintrar samkynhneigðar, þó einnig
þyki sambúð þeirra Tinna og Kolbeins á Myllusetri grunsamleg. Sam-
skipti þeirra minna stundum svolítið á gamalt par, Tinni gerþekkir inná
Kolbein og veit nákvæmlega hvernig hann á að snúa honum um fingur
sér; oftar en ekki er lausnin einfaldlega sú að hella hann fullan, sem
hann gerir reglulega.18 Ein tilfinninganæmasta Tinnabókin er Tinni í
Tíbet (1958, 1960), sem einnig var uppáhaldsbók Hergés sjálfs. Hún var
skrifuð eftir að höfundurinn fékk (einu sinni sem oftar) ofnæmi, já bók-
staflega líkamlegt ofnæmi, fyrir sköpunarverki sínu og dró sig þung-
lyndur í hlé til Sviss. Martraðir um yfirþyrmandi hvíta fleti hrjáðu hann
og læknir hans fyrirskipaði algera hvíld. Sem betur fer hlýddi Hergé
ekki og útkoman var Tinni í Tíbet, ein af hans bestu bókum.19 Hún
fjallar um leit Tinna að kínverska vininum úr Bláa lótusnum, en flugvél
Tsjangs ferst yfir Nepal þegar drengurinn ætlar að heimsækja Tinna
(sem einmitt er staddur á fjallahóteli, að því er virðist í Sviss) og hann er
talinn af. En Tinna dreymir að hann sé enn á lífi og ræðst til farar uppí
Himalajafjöllin. Kolbeinn, fullur efasemda (og með fullan bakpoka af
viskýflöskum), kemur með og auðvitað finnst Tsjang á lífi, undir
verndar væng snjómannsins andstyggilega, Jetans, sem þjóðsögur segja
að finnist í Himalajafjöllum og reynist ekki bara til, heldur líka ákaflega
gefinn fyrir viský. Þarna kemst Hergé á flug í hinu dularfulla, því allir
dularfullir atburðir reynast réttir, draumur Tinna var sýn, Jetinn er í
raun til og í ofanálag hitta þeir fljúgandi lamamunka í tíbetsku klaustri.
Einn þeirra býr yfir þeim hæfileika að sjá sýnir og þannig finnst Tsjang.
TMM_4_2009.indd 78 11/4/09 5:44:40 PM