Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 79
Á t t r æ ð u r Ti n n i á f e r ð o g f l u g i
TMM 2009 · 4 79
Það er verulega áhrifamikið að sjá hvernig Hergé umbreytir hvítum
martröðum í glæsilega hvíta fleti á síðum bókarinnar, en hluti hennar
sýnir þá Tinna og Kolbein, Jetann og Tsjang, að hnoðast um í snjó.
Æskubrunnurinn
Auðvitað kom Tinni til Íslands, en skip Kolbeins kemur við á Akureyri
til að taka olíu á leið þeirra í leit að loftsteininum í Dularfullu stjörnunni
(1940, 1942). Og það er á Akureyri sem Kolbeinn fellur í bindindinu sem
hafist hafði í Krabbanum með gylltu klærnar (1940, 1941, 1944) og fær
sér ‘örlítinn dropa’ af viský út í sódavatnið sitt: „það svíkur engan
sódavatnið á Akureyri“ segir hann svo eftir að hafa slokað í sig fullu
glasi af skota, með þremur sódavatnsdropum í botninum.20 Þremur
áratugum síðar er byrjað að þýða bækurnar og gefa út í íslenskum
útgáfum, á árunum 1971 til 1977 í frábærum þýðingum Lofts Guð-
mundssonar og Þorsteins Thorarensens.21 Síðasta Tinnabókin var Tinni
og Pikkarónarnir, sem byrjaði að koma árið 1975 í Tinna-tímaritinu en
kom út á bók ári síðar. Tinni dó svo með höfundi sínum árið 1983, en
líkt og teketill Nasreddins gat Tinni dáið þó hann hafi aldrei elst og var
alltaf jafn ungur og saklaus að sjá þá tæplega hálfu öld sem hann birtist
á bók. Ef að líkum lætur verður pilturinn þó endurlífgaður árið 2011, í
kvikmynd Stevens Spielberg. Það er freistandi að velta því fyrir sér hvort
þetta Péturs Pan-einkenni sé ástæðan fyrir vinsældum Tinna og stöðu
hans sem klassísks íkons myndasögunnar. Allavega skemmtum við
nýfertugu frændsystkinin okkur ógurlega vel þennan rigningardag í
Brussel þarsem við þræddum götur og krár og leituðum uppi hin ýmsu
ummerki um rannsóknarblaðamanninn skarpskyggna og drykkfelldan
förunaut hans.
Tilvísanir
1 Sjá Michael Farr, The Adventures of Hergé, Creator of Tintin, San Francisco, Last Gasp 2007.
2 Sjá Michael Farr, The Adventures of Hergé, Creator of Tintin, bls. 79.
3 Bækurnar eru: Brussels Through Comic Strips, Comic Strips Through Brussels: A Journey of
Discovery eftir Thibaut Vandorselaer, ensk þýðing Rosamund Wilson, Bruxelles, Versant Sud
2004, og La BD dans la ville / De strip in de stad / The comics in the city: Bruxelles / Brussel /
Brussels, eftir Thibaut Vandorselaer, Bruxelles, Versant Sud 2007.
4 Sjá Michael Farr, The Adventures of Hergé, Creator of Tintin, bls. 33, og Tom McCarthy, Tintin
and the Secret of Literature, London, Granta 2007 (2006), bls. 30.
5 Tom McCarthy, Tintin and the Secret of Literature, bls. 31.
6 Tom McCarthy, Tintin and the Secret of Literature, bls. 32. Hér vitnar hann reyndar í skilgrein-
ingu Numa Sadoul sem skrifaði viðtalsbók við Hergé.
TMM_4_2009.indd 79 11/4/09 5:44:41 PM