Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 82
Þ o r s t e i n n A n t o n s s o n 82 TMM 2009 · 4 Kæri vin, – Ég var að fá bréf frá þér. Mér skilst að þú sért að minna mig á peninga, þó þú farir reyndar fínt í það vegna þess að þú heldur af fenginni reynslu að ég sé að vanda auralítill. Það er mjög fallegt af þér. Það er án efa nokkuð langt þangað til ég hef greitt öllum mönnum það sem ég skulda þeim og því finnst mér, eins og er, varla sitja á mér að vera að bjóða fram fé til þeirra fáu manna, sem ég ekk- ert skulda, jafnvel þótt þeir hinir sömu séu í senn auralitlir sjálfir og alls góðs maklegir. Handrit þitt mun vera hjá mér, en ég hef ekkert um það ákveðið hvort ég lifi af að koma því út, eins og ég mun hafa sagt þér ótvírætt. Sú bók verður aldrei talin skemmtileg eða sérlega merk, hins vegar á köflum interessant fyrir skólapilta sem langar til að skrifa. Leiðinlega bókin þín, sem ég illu heilli lét þrykkja fyrir þig og mig í fyrra, eða hvenær það nú var, þar sem drukkið var allt það kaffi, sem inn- flutt var á samanlögðu öllu skömmtunartímabilinu, hefur ekki fundið náð fyrir augum þeirra sem leggja fram peninga fyrir bækur og reyndi ég þó af veikum mætti og mjög gegn breizkri samvisku minni að skrökva upp á hana margskonar girnilegum verðleikum. En allt kom fyrir ekki. Elías Mar er ekki maður dagsins enn. Því er nú helvítis ver, Elías minn kær, að nú hef ég í svipinn ekki ráð á því að prenta bækur fyrir mig einan, en strax og sá dagur siglir aftur sunnan yfir höfin, mun ég byrja á því á ný og þá kemur Þjóðvísan þín á prent, nema þú hafir áður kynnst öðrum útgefanda, sem ekki gefur út bækur til að prakka þeim inná annað fólk, heldur lætur gera þær handa sjálfum sér eins og málverk, sem enginn utan eigandinn fær nokkurntíma augum litið. Ef ég skildi [svo] sjálfur, á undan þér, frétta af slíkum manni, væri gott að þú segðir mér eða V.S.V. hvað málverkið á að kosta. Engin sérstök tíðindi man ég handa þér nema hvað verið er að opna Þjóðleik- húsið og listamannaþing hefst uppúr því. Þinn einlægur. Ragnar. Þessu bréfi útgefandans svaraði Elías með bréfi dagsettu 2. maí þá um vorið. Svarið er fróðleg heimild um afstöðu hans til framangreindra skáldsagna hans þriggja, svo og um skipti þeirra Ragnars. Vert er að hafa í huga að Elías er nú almennt álitinn fyrsta Reykjavíkurskáldið á óbund- inn skáldskap og Vögguvísa brautryðjandaverk. Góði vinur. Þökk fyrir bréfið. Þú samlíkir vafasömum bókaútgáfubissnes við málverkakaup, og skáldsögu- handriti mínu líkirðu við málverk. Þetta er ekki ósnjöll samlíking. Einu sinni mun Steinn Steinarr hafa líkt skáldsögum við esk. sendibréf, sem höfundar sendu hverjir öðrum og ekki væri hægt að krefjast, að almenningur skildi nema undir og ofan á. Hvað sem segja má um það, þá er eitt víst: að bókaútgefandi má aldrei gera sér vonir um að græða á skáldsögu eftir ungan höfund, síst af öllu skáldsögu, sem kemur með eitthvað nýtt; og í öðru lagi: það þýðir ekki að bíða eftir því, að TMM_4_2009.indd 82 11/4/09 5:44:41 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.