Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 84

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 84
Þ o r s t e i n n A n t o n s s o n 84 TMM 2009 · 4 hlýturðu að minnast þess, ef þú hugsar þig um. Ég tel heldur engan skaða, að hún var ekki auglýst. Persónusögulegt plagg, eins og hún er, þarf ekki að auglýsa. Svo mörg eru þau orð um þá sögu í bili, og vil ég nú aftur snúa mér að nýjustu sögunni minni, þeirri sem þú hefur í fórum þínum og heitir „Vögguvísa“. – – – Það mun hafa verið skömmu eftir að ég kom heim, haustið 1947, eða í nóvember, að mér kom til hugar efni í smásögu, sem átti að gerast í billjardstofu. Sagan átti að gerast á tæpum klukkutíma og varla verða lengri en fjórar eða fimm síður crown. Ég velti efninu fyrir mér lengi og skrifaði ekki staf, meðfram vegna þess, að ég mátti ekki skrifa, sökum nýafstaðinna veikinda. Mig kitlaði í fingurna eftir því að gera sögunni skil; og ídean yfirgaf mig ekki, heldur jókst hvað leið, unz um vorið, að ljóst var, að þetta myndi aldrei verða smásaga, heldur skáldsaga. Snemma um veturinn hafði ég byrjað á því að orðtaka reykvískt talmál, og er sú skrá í fórum mínum nú, fullgerð. Þetta nýstárlega orðasafn, með skýringum á uppruna, notkun og merkingu orðanna, veitti mér mikla hjálp og beinlínis gaf mér ídeur, þegar ég loksins fór að notera hjá mér þau drög, sem urðu uppistaðan í „Vögguvísu“. En ekki skrifaði ég söguna fyrr en í sumar sem leið, úti í Helsing- fors, og þá voru liðin tvö og hálft ár frá því ég gekk frá „Man ég þig löngum“ – og margt búið að ske í þroska mínum, sem ekki er tímabært að ræða um nánar hér. Nema hvað, með „Vögguvísu“ tók ég upp önnur vinnubrögð en ég hafði áður notað, vinnubrögð, sem ég býst við að viðhalda, ef ég skyldi einhverntíma skrifa skáldsögu aftur. Í þeirri sögu geri ég tilraun til að sýna einskonar „þverskurð“ af reykvísku lífi. Og það er ekki mér að kenna, ef myndin er eitthvað annað en falleg í sárið. Sum beztu og sönnustu málverk þýska Weimarmálarans Groz þykja ekki beinlínis fögur. En þau verða lengi talin sannasta myndlist Evrópu frá árunum 1918–1933. Í „Vögguvísu“ geri ég semsagt tilraunir, bæði hvað snertir mál, byggingu, söguefni, jafnvel stíl. Enginn skal fúsari til að viðurkenna en ég, að sumt í bók- inni er undir vísvitandi áhrifum frá höfundum, sem ég las árin 1948–49, ekki hvað sízt James Joyce, Ödön von Horváth og Faulkner. Hins vegar leyfi ég mér að vona, að ekki sé hægt að gera heiðarlegri tilraun til að skrifa aktúela skáldsögu en ég hefi þar gert. Má vera, að tilraunin hafi ekki tekizt sem skyldi. Um það er of snemmt að dæma að svo stöddu. Hitt er víst, að stærra spor en liggur milli fyrri skáldsagna minna og þessarar hefur enginn íslenzkur ungur rithöfundur stigið undanfarna áratugi. Þegar ég skrifa þessar línur kemur mér til hugar, að ef til vill er það skylda mín að skrifa meira um bókmenntir en ég geri. Það er ef til vill ekki þess vert að senda frá sér hvert skáldverkið á fætur öðru fram fyrir almenning og gagnrýnendur, án þess að gera grein fyrir því annað slagið, hvað er að ske í bókmenntaheiminum, þó ekki væri til annars en að sýna fram á, að maður viti, hvað maður er að fara. En margt þarf að gera og mörgu að sinna. Það eru svo mörg verkefni fyrir stafni, að ég gleymi því langoftast, hvað ég er blankur, meira að segja því, að bókaútgef- endur eru háðir sömu fjárhagslegum erfiðleikum. TMM_4_2009.indd 84 11/4/09 5:44:41 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.