Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Síða 102
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
102 TMM 2009 · 4
eskjur sem taka hann að sér og veita honum heimili og þá nánd sem
hann þarfnast. Það er sem rauður þráður í gegnum bækur Bjarna, þráin
eftir endurlausn heimilis og hamingju. Hún tekur hold í þeim konum
sem koma inn í líf hans. Í samfélagi við þær er sem lífið finni fyrst far-
veg. Hamingju og heimili er hér að finna í fangi konu. Þetta er reynsla
sem margir karlmenn þekkja vel og lifa fyrir. Það væri verðugt viðfangs-
efni að athuga sérstaklega konurnar í bókum Bjarna og hin mörgu hlut-
verk þeirra.
Í Andliti lýsir Bjarni erfiðleikum þess hlutskiptis sem hann hefur
valið sér. Í lok bókarinnar er ákvörðuninni lýst. „Fyrir framan mig var
bókahillan mín. Ég hafði það fyrir reglu í lífinu að kaupa aldrei bækur
[…] Allar bækurnar í hillunni voru því eftir önnur neðanjarðarskáld,
árituð verk sem ég hafði fengið í skiptum. Ég virti fyrir mér þessa lit-
skrúðugu hillu, þetta safn sem ég gerði mér allt í einu grein fyrir að væri
einstakt á Íslandi og skildi að þarna, beint fyrir framan eldrautt nefið á
mér, var heimurinn minn. Ég þurfti ekki að eltast við eitt eða neitt. Hér
var samfélagið sem ég tilheyrði, samfélag hinna lágstemmdu drauma“
(A 267–268).
Bjarni játast hér stöðu sinni og starfi. Hann er neðanjarðarhöfundur
sem er á skjön við ríkjandi hugmyndir í íslenskum bókmenntum, ekki
ósvipað og Immanúel í dalnum. Honum hefur ekki tekist að læra „eina
einfalda setningu, þríeiningarsetninguna svokölluðu: Land, þjóð og
tunga þrenning sönn og ein. Þetta var bókmenntafræðin sem ég þurfti
að kunna skil á. Landið er sögusviðið. Þjóðin er efnið, sagan hennar
sögutíminn. Tungan það sem sýnir að þetta ber af öllu öðru í alheim-
inum“ (A 265). Inntak íslenskrar stórmennsku og minnimáttarkenndar
nær ekki til hans heldur leitast hann við að koma til skila trúarlegri
reynslu sem snertir iðrun, játningu, sátt og samfélag. Það gerir hann
með því að nýta minni og myndir úr goðsögum og kristnum táknheimi,
en nú þurfti að færa þetta inn í íslenskan veruleika. Það er varla hægt að
gera á skemmtilegri máta en með því að taka djöfulinn út úr sínu goð-
sögulega samhengi. Bjarni lætur Satan sækja háborg íslenskrar menn-
ingar heim og setjast þar að í því allra helgasta, m.a. á B5 kaffihúsi í 101
Reykjavík.
Bernharður Núll
Áður en vikið er að bókinni Bernharði Núll er nauðsynlegt að huga að
nokkrum þáttum í kenningu kristninnar um djöfulinn eða Satan.
Erfiðleikar, þverstæður og böl heimsins eru í trúarbrögðum venjulega
TMM_4_2009.indd 102 11/4/09 5:44:43 PM