Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 104
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n 104 TMM 2009 · 4 ins. Satan hefur sjálfur ekki vald heldur verður að beita öðrum, þ.e. manninum, fyrir sig. Í kristinni trúfræði er almennt varað við tveimur hættum í sambandi við hið illa. Fyrri hættan felst í því að maðurinn bindi bölið, þjáninguna og hið illa við persónu sem afvegaleiðir hann af því að hún er honum framandi. Þessi skilningur leiðir til þess maðurinn firrir sig ábyrgð og varpar ábyrgð sinni yfir á annan (1M 3.9–23). Seinni hættan felst í því að maðurinn dragi úr veruleika hins illa sem valds með því að skilgreina það í ljósi breyskleika mannsins. Slík áhersla leiðir til þess annars vegar að hið illa endurspeglar vanþroska mannsins, sem maðurinn getur sjálf- ur bætt í skólagöngu lífsins, eða hins vegar að maðurinn er gerður illur í eðli sínu. Ef maðurinn er illur í eðli sínu er hann ekki virtur sem sköp- un Guðs, en það leiðir til tvíhyggju.11 Bjarni nýtir sér hugmyndina um Satan sem föður lyginnar og blekk- ingarinnar. Og hvergi er hún eins erfið viðfangs og í sjálfsblekkingunni, en Bernharður Núll er fangi hennar. Nafnbótin Núll vísar til stöðu hans og sambandsleysis við umhverfið. Hann hefur valið sér það hlutskipti að standa álengdar við veruleikann. Hann fylgist með honum og forðast öll samskipti við aðra. Satan hefur tekið ákvörðun um að helga sig alfarið augnablikinu. Bernharður Núll hefur reynt að sagan og þekking á henni gagnast lítt, hún miðlar engum sannleika; „hinar endalausu orsakakeðj- ur mannkynssögunnar, sem aldrei byrjuðu neinstaðar og hvergi enda, þær sem binda saman það sem menn kalla dýpt, þær leiða aldrei til vit- rænnar niðurstöðu. Og til hvers að muna allt ef það er bara til þess að vita ekki neitt? Þá er betra að gleyma og horfa á stundina koma og fara“ (BN 100–101). Atburðir sögunnar eru svo margir og stórir að hún gerir hversdaginn merkingarlausan. Bernharður ákveður því að yfirgefa söguna og hverfa inn í algleymi núsins, en ekki sem þátttakandi heldur áhorfandi. Hann leitast þannig við að sniðganga þjáninguna sem lífinu fylgir. Hann flýr inn í sambandsleysið og lifir ekki sem þátttakandi heldur sem áhorf- andi. Hugsunin að baki gjörðum hans er að líta á sig sem ekki neitt. Þegar hann gerir eitthvað þá fer um leið eitthvað af stað sem hann ræður ekki við og sambönd og sárindi skapast. Hann heldur sig því við afskiptaleysið og hlutleysið. Það er staða hans og til að tryggja hana skráir djöfullinn allt sem gerist í kringum hann á kaffihúsi B5 í 101 Reykjavík. Sambandsleysið er ástand hins djöfullega, það er tómið eða Núll. Bernharður Núll er ekki einfaldur og álítur sig sjá í gegnum sjálfs- blekkingu sína. Það eina sem gefur honum tilgang er Guð. Hann er sá TMM_4_2009.indd 104 11/4/09 5:44:43 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.