Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Síða 107

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Síða 107
„ É g e r l í f , s e m v i l l l i fa , u m va f i n n l í f i s e m v i l l l i fa .“ TMM 2009 · 4 107 þátt í mannlegu lífi sem allir glíma við: Það er hin djöfullega staða afskiptaleysis og fjarlægðar þess sem fylgist bara með en tekur ekki þátt í lífi með öðrum. Bjarni hafnar þeirri stöðu og úr verki hans má lesa áskorun um að við nýtum okkur það rými lífs sem samskipti milli fólks myndar og þá með öllum sínum þverstæðum, erfiðleikum en líka ánægju og blessun. Lokaorð Þannig má rekja sig eftir bókum Bjarna Bjarnasonar frá iðrun til játn- ingar, frá sátt til samfélags. Bækur Bjarna einkennast af viðleitni til að nota guðfræðilegt táknkerfi til að ljúka upp gildum hversdagslegs lífs. Slík viðleitni er vel þekkt innan guðfræðilegrar hefðar. Nægir að benda á t.d. hvernig goðsagnakenndur táknheimur er notaður í jólaguðspjall- inu til að ljúka upp fyrir lesandanum nauðsyn þess að maðurinn virði mennsku sína. Þessi veruleiki er opinberaður í hversdagslegum atburði sem jafnframt er eitt mesta undur lífsins, fæðingu barns. Þar er greint frá því að Guð gerist maður svo maðurinn gangist við mennsku sinni og náungans. Því fylgir að hver og einn þarf að bera sinn kross. Í greininni hef ég leitast við að skoða bækur Bjarna út frá sjónarhóli guðfræðinnar og staðsetja umfjöllun þeirra í hugtakakerfi evangelísk- lútherskrar guðfræði. Óneitanlega má segja að Bjarna hafi tekist að nota þann táknheim til að ljúka upp mikilvægi þess að einstaklingurinn gangist við lífinu. Albert Schweitzer (1875–1965) orðar hið sama svo: „ég er líf, sem vill lifa, umvafinn lífi sem vill lifa.“14 Tilvísanir 1 „Ich bin Leben, das leben will, in mitten von Leben, das leben will“. Albert Schweitzer, Kultur und Ethik – Kulturphilosophie Zweiter Teil. Olaus Petri Vorlesung an der Universität Uppsala, München 1923, 239. 2 Ég vil þakka Soffíu Auði Birgisdóttur og Guðmundi Andra Thorssyni fyrir yfirlestur og gagn- legar ábendingar og Bjarna Bjarnasyni fyrir góð samtöl. 3 Sjá um Andlit, Guðmundur Andri Thorsson: „Tilgangur komdu himinn“, í: TMM 3/2004. 4 Otto Böcher, „satan“, Exegetisches Wörterbuch zum Neuen Testament, 3. bindi, 2. útg. Berlín 1980, 558–559; Werner Foerster, „satanaς“, Theologisches Wörterbuch zum Neuen Testament, 7. bindi, Berlín 1990, 152–161. 5 Hér er greinilegt að Satan er einhvers konar ráðgjafi, lögfræðingur eða saksóknari hjá Guði sem athugar hvort fólk sé tryggt í hollustu sinni við hann. Vel getur verið að þessi mynd af Satani sé fengin að láni úr stjórnskipulagi í Persaveldi. Sjá Kristin Ólason, „Hvernig getur maður haft rétt fyrir sér gagnvart Guði? Íob 9.2“, Kirkjuritið, 1. hefti, 67. árg., 2000, 17. 6 Gerhard von Rad, „diaboloς“, Theologisches Wörterbuch zum Neuen Testament, 2. bindi, Berlín 1990, 71–74. 7 Kirsten Nielsen, „Teufel II“, í TRE 33. bindi, Berín 2002, 114. TMM_4_2009.indd 107 11/4/09 5:44:43 PM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.