Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Blaðsíða 117

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Blaðsíða 117
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2009 · 4 117 Fléttan sem fyrr var getið, símtalið sem lætur bíða eftir sér, hin óútskýrða fjar- vera, er í raun aðeins rammi utan um þá sögu og um leið hinn djúpi undirtónn allrar skáldsögunnar. Þegar bókarheitinu er flett upp á bloggsíðum koma tvö lýsingarorð upp aftur og aftur: hugljúf og ljúfsár. Það fer lítið fyrir ljúfleikanum í þeirri sögu sem hér er sögð. Hin hófstillta frásögn er einn af meginkostum bókarinnar, en veldur því greinilega að hún hefur verið vanmetin og lesin of yfirborðslega. „Við mamma þurftum nálægð“. Í endurminningunni tengist móðirin Hálogalandi, leikjum og nærveru, ilmandi lyngi, ánni, tímanum sem streymir burt. Bréfið sést hvergi í fari föðurins, engin iðrun, engin nánd. „Við þurfum fjarlægð til að vera nánir“ (138). Í sögulok kemur Einar að föður sínum látnum í rúminu: Glugginn var lokaður og ekkert í herberginu bærðist, allt var alveg kyrrt og alveg hljótt og alveg afstaðið nema á trönunum var málverk sem sýndi hreyfingu. Það var bátur sem sigldi hægt eftir lygnum sjó – út í bláan buskann. Himinninn var ófull- gerður (152). Sagan er mjög fallega skrifuð eins og tilvitnanirnar hér að ofan bera með sér og ber af þeim skáldsögum síðasta árs sem ég hef lesið. Árni Óskarsson Blóm hins illa Ólafur Gunnarsson: Dimmar rósir. JPV útgáfa, 2008. Ólafur Gunnarsson hefur á umliðnum árum skapað sér nokkra sérstöðu meðal þeirra íslenskra rithöfunda sem fást við sagnagerð. Hann hefur skrifað stórar og dramatískar skáldsögur með mjög siðferðilegum, jafnvel trúarlegum undir- tón, hefðbundnar í formi og í anda skáldsagnahöfunda 19. aldar. Oft hefur hann fjallað um persónur sem með brestum sínum og afglapahætti leiða hörm- ungar yfir sína nánustu og skapa glundroða allt í kringum sig. Löngu áður en „óreiðumenn“ urðu viðtekið viðfangsefni þjóðfélagsumræðunnar hafði hann uppgötvað seiðmagn þeirra og háska sem gerir þá að ómótstæðilegu viðfangs- efni skáldsagnahöfundar. Titill þessarar nýju skáldsögu hans er heiti á dægurlagi sem kom út á plötu árið 1969 í flutningi hljómsveitarinnar Tatara og naut nokkurra vinsælda. Nafnið vísar til hippatímans svonefnda í kringum 1970 og í kynningu bókar- innar var mikið lagt upp úr þeirri vísun og að þar kæmu við sögu annálaðir TMM_4_2009.indd 117 11/4/09 5:44:44 PM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.