Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 121

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 121
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2009 · 4 121 sér að nýju? Þeim spurningum verður hver lesandi að svara fyrir sig. Í þessari sögu er fjallað um mannlega harmleiki á áhrifamikinn hátt og varpað fram mörgum stórum og áleitnum spurningum. Hún sver sig mjög í ætt við margar fyrri bækur Ólafs í dramatískri framvindu sinni og siðferðilegum vangavelt- um. Það verður forvitnilegt að sjá hvert framhaldið verður. Björn Þór Vilhjálmsson Heimsmynd í upplausn Íslenska sakamálasagan, fjölmenningarsamfélagið og Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur Auður Jónsdóttir: Vetrarsól. Mál og menning, 2008. Hugtakið „póstmódernismi“ felur í senn í sér sýn á samfélagsgerðina og við- horf til fagurfræðilegra umbyltinga nýliðinna áratuga. Í höfuðriti sínu, Póst­ móderníska ástandinu, gerir franski heimspekingurinn Jean-Francois Lyotard hvort tveggja að umfjöllunarefni en lætur sig hið fyrrnefnda þó meiru varða.1 Áhugi Lyotards á samfélagsgerðinni leiðir til athyglisverðrar tengingar milli hins póstmóderníska menningarstigs og þess sem í dag er jafnan kennt við hnattvæðingu. Í ritum sínum dregur Lyotard fram mynd af hinni velstæðu vestrænu sjálfsveru sem í krafti sögulegrar „rökvísi“ situr í stafni framþróunar og velmegunar. Um er að ræða neysluknúið sjálf í neysluknúnu samfélagi; sjálfsvera þessi stendur frammi fyrir óþrjótandi valkostum, veröldin hefur skroppið saman en reynslu- og neysluheimurinn hefur að sama skapi marg- faldast að umfangi. Á póstmódernískum tímum púsla upplýstir neytendur saman sjálfsmynd sinni, skapa sér lífsumhverfi og kjósa sér verustað úr sam- blandi hins alþjóðlega og hins þjóðlega; ráp milli menningarheima á sér stað umhugsunarlaust. „Við“ lifum í sólskini fjölbreytileikans, „allt gengur“, eins og sagt er. Landamærin sem mörkuðu lífheiminn hér áður fyrr skipta ekki lengur jafn miklu máli, yfir þau er flogið á hljóðhraða og þverþjóðleg samvinna hefur í mörgum tilvikum gert þau ósýnileg. Gott og vel. En að baki þessum heimi er annar veruleiki sem Lyotard veitir ekki síður athygli og kennir við raunsæi peninganna, raunsæið sem „skapar öllum hneigðum farveg líkt og kapítalisminn veitir öllum þrám framrás“.2 Þarna bendir Lyotard á fylgifisk hins margklofna athafna- og tilvistarfrelsis samtímans, þá staðreynd að hinn upphafni póstmóderníski veruleiki, eins og hann birtist okkur í verslunarmiðstöð forréttindanna, er afar þröngt skil- greindur og ennfremur byggður á tilteknum heimspólitískum kringumstæð- TMM_4_2009.indd 121 11/4/09 5:44:45 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.