Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 124

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 124
D ó m a r u m b æ k u r 124 TMM 2009 · 4 fjarlægu menningarrými við hið sínálæga umhverfi sem íslenskir lesendur bókarinnar þekkja svo mætavel.6 Nýjasta skáldsaga Auðar, Vetrarsól, á þetta sameiginlegt með Öðru lífi. Í nýju bókinni verður sögusviðið einnig til úr sam- blandi hins hnattræna og hins staðbundna, hið útlenda setur úr jafnvægi venjubundinn veruleika Íslendingsins og skilningsleysi og fumkennd sam- skipti andspænis því sem er framandi birtast hér líkt og í Öðru lífi. Í Vetrarsól tekst þó ólíkt betur til og sýnin á skörun menningarheima, hætturnar og kost- ina sem henni fylgja, er skýrari. 2. Vetrarsól segir af hinni hæglátu og eilítið feimnu Sunnu, konu um þrítugt sem starfar á bókaforlagi, og sem hefur að sumu leyti siglt lífi sínu í strand. „Núna átti barnið að vera komið. Núna átti rétta vinnan að vera fundin. Núna átti ég að hafa uppgötvað rétta staðinn í lífinu“ (93), hugsar hún á einum stað og lýsir þannig bæði væntingum sínum og vonbrigðum. Metnaðurinn sem eitt sinn dreif hana áfram hefur smám saman slokknað, eða verið ruggað í svefn af þeirri röð tilfallandi afleysingar- og íhlaupastarfa er henni hafa verið fengin ár eftir ár á forlaginu, án þess að hún nokkurn tíma höndli þann frama innanhúss sem hún þráir, eða að skáldadraumarnir sem móðir hennar er sannfærð um að knosi sálina verði að veruleika (250). Langvarandi þunglyndi virðist reyndar ráða hér nokkru um, sjálfsmyndin er ótraust (Sunna er manneskja sem „líður áfram en óttast allt“, 122) og ekki bætir úr skák að efasemdir um samband hennar við hinn myndarlega Axel vakna í framrás sögunnar. Þau Axel hafa verið saman um árabil en þegar sagan hefst situr Sunna hálfpartinn uppi með son hans, hinn geðuga og hálfstálpaða Helga sem er í heimsókn frá Danmörku, meðan faðirinn er veðurtepptur vestur á fjörðum í viðskiptaerindum. Fjár- hagsáhyggjur gera þeim erfitt fyrir og á þeim ber Axel ábyrgð. Hann er bjart- sýnismaður sem þó virðist ekki skilja fyllilega þau veruleikatengdu atriði sem greiða þarf úr svo að hægt sé að hrinda draumum í framkvæmd. Það sem hér vekur þó mesta athygli er söguvettvangurinn, bókaforlagið, og þær skírskot- anir sem fylgja honum. Það er líkt og verkið vilji vekja athygli á uppruna sínum og áþreifanlegri hlið skáldskaparins. Til að hnykkja enn frekar á þunga svið- setningarinnar er aðalvertíð allra forlaga, jólin, um það bil að skella á. Hinar miklu annir sem fylgja þessum uppgripsmánuði reynast ein af mörgum flækj- um sem herja á líf Sunnu í sögunni. Tímarammi bókarinnar er þessu sam- kvæmt býsna þéttur og skilmerkilega framsettur. Enda þótt súkkilaðijóladaga- talsins sem svo skemmtilega yljar lesanda á fyrstu síðum bókarinnar njóti ekki við þegar fram í sækir er auðvelt að fylgjast með framrás tímans því kaflar bera heiti mánaðardaga og tímatalning af ýmsu tagi reynist miðlægur þáttur. Því mætti jafnvel halda fram að hugmyndin um tíma, og þá ekki síst liðnar stund- ir og minningar, sé hér í lykilhlutverki, eins og lesandi sér reyndar holdgerast í manninum með klukkuna, ógæfumanni sem ráfar stundum inn á forlagið með tifandi klukku í tösku og Sunna annast af mikilli þolinmæði. TMM_4_2009.indd 124 11/4/09 5:44:45 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.