Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Blaðsíða 111
Á d r e p u r
TMM 2011 · 4 111
undir kenningu sálgreiningarinnar,14
sem þýðir að þeir hafi ætlað sér að prófa
kenningar sálgreiningar, með þættina
sem einhvers konar sönnunargögn. Í
greininni er hins vegar hvergi að finna
röksemdafærslu sem snýr að því að
prófa kenningarnar. Aftur á móti má
finna nóg af líkingamáli. Meginlíking
þeirra er hin undarlegasta: Leikarar sem
leika hlutverk í gamanþáttum falla í
hlutverk þriggja hugarferla. Hver og ein
persóna á að lýsa raunverulegu hugar
ferli (Ólafur t.d. þaðinu). En líking er
bara líking, ekki góð og gild rök fyrir
fullyrðingu.
(b) Andri og Steinar hefðu getað líkt
aðalpersónum þáttanna við nánast hvað
sem er. T.d. hefðu þeir getað líkt þeim
við þrjár af þeim manngerðum sem
gjarnan eru kenndar við Freud. Ein er
bjartsýn, auðblekkjanleg og einföld
(Ólafur); önnur er nísk, langrækin, smá
munasöm, nákvæm (Georg); og sú
þriðja er hófsöm, hrædd og undirgefin
(Daníel).15 Eflaust mætti líka líkja aðal
persónunum við eitthvað úr kenningum
annarra sálgreinenda, t.d. Carls Jung
eða Melanie Klein. En til hvers? Að slík
um samlíkingum er ekkert gagn.
(c) Þá má benda á þrjá atburði í þátt
unum þar sem persónurnar haga sér alls
ekki eins og maður hefði haldið, ef
maður tekur Andra og Steinar alvarlega.
Gefum okkur, á meðan dæmin eru
skoðuð, að það sé vit í líkingamáli þeirra
sem og kenningum Freuds. (1) Í einum
þætti taka einhverjir sig til og teikna á
andlit sonar Georgs, en sonurinn hafði
verið á vappi í kringum bensínstöðina
áður en þetta gerðist. Ólafur þrífur and
lit drengsins, óumbeðinn og án umbun
ar.16 Þetta er ósamræmi við þaðið, en í
þaðinu fyrirfinnst aðeins fullkomin eig
ingirni og taumlausar ástríður.17 Ólafur
er hér í fullkomlega óeigingjörnu hlut
verki. (2) Í fyrsta þætti sullar Georg
bensíni viljandi yfir bíl þegar hann
kennir Daníel að dæla bensíni á bíla.
Georg kallar á Ólaf til að hreinsa bens
ínið af bílnum.18 Georg gerir þetta aug
ljóslega til að kúga og pirra Ólaf.
Munum að yfirsjálfið er miðstöð sam
visku, það er ekki siðblint. (3) Ekkert
ber á sáttasemjarahlutverki Daníels fyrr
en í fjórða þætti, en jafnvel eftir það ber
lítið á því. Í lýsingum Freuds er núning
ur þaðs og yfirsjálfs stöðugur, mikill og
sáttaumleitanir algengar. Ekki er um
það að ræða í þáttunum, Daníel er sjald
an í hlutverki sáttasemjara eða milliliðs.
(d) Að sama fyrirvara gefnum og í lið
(c): Hvaða hlutverki gegnir Ylfa, sú sem
vann í sjoppunni rétt hjá? Og sonur
Georgs? Hannes Hólmsteinn? Fyrir
hvaða hugarferla eru þau fulltrúar? Þau
passa ekki inn í kerfið sem er gengið út
frá í greininni!
Þessar persónur minna stundum á
þaðið, sjálfið og yfirsjálfið. En það er
bara líking. Sú líking dugir skammt og
til að líkingin sé trúverðug þarf að láta
eins og aðrar persónur séu ekki til og
þar með þröngva líkingunni upp á þætt
ina. Auðvitað eru Ólafur, Georg og
Daníel ekki fulltrúar sálrænna afla.
Ástæðan er auðvitað sú að þeir eru pers
ónur í sjónvarpsþáttum!
Næturvaktin og dulvitund
Freuds
Andri og Steinar ganga út frá því í
greiningu sinni að Næturvaktin lúti lög
málum sálgreiningarinnar19 og því sé
hægt að taka þættina til athugunar með
aðferðum sálgreiningar, rétt eins og
Freud og fleiri hafa tekið til athugunar
með sömu aðferðum mismæli, penna
glöp, drauma, bókmenntaverk og
fleira.20 Grein þeirra er augljóslega til
raun til svipaðrar greiningar.
Lykilstef í kenningum Freuds er dul
vitundin, hvort sem litið er til eldri