Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Qupperneq 115
Á d r e p u r
TMM 2011 · 4 115
hann varpar aftur í dulvitund og það
sem hann hleypir í gegn, ella geti hann
ekki stundað sína ritskoðun. En sé hann
meðvitaður um það er efnið meðvitað
en ekki dulvitað. Upphaflega forsendan
var þó sú að efnið væri dulvitað. Í þessu
felst því mótsögn. Einhver gæti reynt að
bjarga kenningunni með því að gera ráð
fyrir að vörðurinn hafi sjálfur vörð, dul
vitund og meðvitund. En úr því verður
vítaruna: Er þá seinni vörðurinn líka
með vörð? Og svo koll af kolli. Í raun
hefur vandamálið aðeins verið fært til
en ekki leyst.
Enn aðrir myndu kannski segja að
röksemdir Sartres byggist á manngerv
ingu og hugtakaruglingi: Vörðurinn sé
ekki lítill karl í höfðinu á okkur, en því
geri Sartre ráð fyrir í röksemdum
sínum. Manngerving sú eigi sér augljós
ar rætur í ofangreindri lýsingu Freuds,
en lýsingin sé ekkert annað en líking. Ef
svo er, hvernig virkar þá bæling? Hvern
ig fer hún fram? Frekari svör er ekki að
finna hjá Freud sjálfum því framan
greind lýsing er sú ítarlegasta sem er í
boði.44
Eru þessi hugtök, dulvitund og bæl
ing, þá dauð? Það er freistandi að játa
því og margir sálfræðingar gera það. En
ef rökin þykja ekki nógu sannfærandi,
þá ætti maður í það minnsta að fyllast
efa. Fyrir þá sem svo er komið fyrir má
benda á tvær bækur og eina grein til
frekari fróðleiks: Freud Evaluated: The
Completed Arc eftir Malcom Macmill
an, áðurnefnda Freudianism eftir
Vološnov og grein eftir Colin McGinn í
The New York Review of Books.45
Þurfum við freudismann?
Að lokum er vert að impra á stöðu sál
greiningar innan nútímasálfræði.
Ástæðan er vitanlega tenging greinar
innar um Næturvaktina við fullyrðingar
um meðferðartækni og að því er virðist
almenna fylgispekt við sálgreiningu.
Hin ástæðan er almennur og útbreiddur
misskilningur um að kenningar Freuds
séu almennt viðurkenndar innan sál
fræði.
Því fer víðs fjarri að kenningar
Freuds séu viðurkenndar innan sál
fræði. Hið rétta er að þeim hefur verið
hafnað. Hvaða kennslubók sem er í sál
fræði ber vitni um það og það sem mik
ilvægara er: Greinar í vísindalegum sál
fræðitímaritum fjalla nánast aldrei um
kenningar Freuds eða rannsóknir
byggðar á þeim, heldur ráða þar ríkjum
hugmyndir úr hugfræði, lífeðlisfræði og
atferlisfræði. Kenningar Freuds lifa hins
vegar góðu lífi utan sálfræði rétt eins og
hómópatía lifir góðu lífi utan læknis
fræði.
Tilvísanir
1 Ásgeiri Berg Matthíassyni, Berglindi
Óladóttur, Jóni Gunnari Þorsteinssyni og
Kjartani Halli Grétarssyni eru færðar þakkir
fyrir yfirlestur og ábendingar á meðan þessi
grein var í vinnslu.
2 Andri Fannar Ottósson og Steinar Örn
Atlason (2008). Næturvaktin: Íslensk sál-
greining? Tímarit Máls og Menningar (3),
bls. 83–94.
3 Ibid, bls. 93.
4 Margir sem lesa grein Andra og Steinars
gætu verið í vafa um hvort þeim sé alvara
eða ekki. Höfundur var svo sannarlega í
vafa fyrst. En þeim er alvara. Sést það best á
ýmsum athugasemdum þeirra um lyf, en líka
t.d. á þessari: „Grunnhugmyndin að baki
greininni er að bensínstöðin við Laugaveg
endurspegli vitundarlífið eins og Freud sá
það fyrir sér, þá krafta sem eru að verki í
manninum og sem maðurinn verður að tak
ast á við ætli hann sér að þroskast og öðlast
djúpstæðan skilning á sjálfum sér. (bls. 93).
5 Ibid, bls. 93.
6 Ibid, bls. 84.
7 Ibid, bls. 85. Raunar segja þeir Andri og
Steinar að þaðið og dulvitund sé hið sama
(og að Ólafur sé fulltrúi dulvitundar
innar). Segja þeir t.d.: Í raun eru það ekki