Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 130

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 130
D ó m a r u m b æ k u r 130 TMM 2011 · 4 gengur út á það að gera úr verkum eins helsta talsmanns raunheimsins í íslenskri myndlist, hvers endurgerð á trjáviði, jafnt hráum sem fundnum, er gegnsýrð efnislegri nautn og leikgleði, linnulaust andóf gegn eigin tilvist. Stóra bókin um Guðjón er því enn óskrifuð. Hlutir sem hafa merkingu Það er kunnara en frá þurfti að segja, hve óskipulega hefur verið staðið að allri upplýsingu um íslenskan myndlistararf. Þar er töluvert upp á stóru söfnin að klaga, hverra skilgreinda markmið er – eða var – að hafa frumkvæði að slíkri upplýsingu. Árum saman máttum við horfa upp á það sem í íslenska bók­ menntaheiminum var kallað „hringekja ástarinnar“, endurteknar sýningar á verkum þeirra listamanna sem forsvars­ menn safnanna höfðu sérstaka velþókn­ un á, væntanlega í krafti sögulegs mikil­ vægis þeirra. Á sama tíma var myndlist annarra listamanna ýmist sniðgengin eða fékk það sem kalla mætti flýtimeð­ ferð. Listinn yfir vanrækslusyndir vorar er orðinn býsna langur. Til dæmis hefur ævistarf þeirra Jóns Stefánssonar, Gunnlaugs Scheving, Gunnlaugs Blön­ dal, Snorra Arinbjarnar og Nínu Tryggvadóttur enn ekki verið brotið til mergjar í formi „alvöru“ yfirlitssýninga og bókaútgáfu. Ef litið er til frumkvöðla abstraktlistarinnar einvörðungu, hafa nokkrir ágætir fulltrúar hennar orðið skipulega útundan hjá hinu opinbera, ég nefni einungis Benedikt Gunnarsson, Eirík Smith, Hafstein Austmann, Hjör­ leif Sigurðsson, Kjartan Guðjónsson, Steinþór Sigurðsson, Valgerði Hafstað og Vilhjálm Bergsson. Mér skilst raunar að Listasafn Reykjavíkur telji það ekki vera í sínum verkahring lengur að setja saman yfirlitssýningar, virðist því fokið í það skjól. Hins vegar hefur myndlist Karls Kvaran verið í sviðsljósinu með reglu­ legu millibili allt frá öndverðum áttunda áratugnum. Eitt hundrað verka yfirlits­ sýning á verkum hans var haldin í Lista­ safni Íslands árið 1986, og síðan hafa a.m.k. þrjár stórar sýningar verið helg­ aðar verkum hans einvörðungu (m.a. í Norræna húsinu og Listasafni Akureyr­ ar), að ógleymdum aragrúa samsýninga um allar þorpagrundir. Þrátt fyrir það hefur heildstætt yfirlitsrit um verk hans ekki enn litið dagsins ljós. Ef til vill hefur sú ávöntun legið að baki þeirri ákvörðun Listasafns Íslands að efna til annarrar yfirlitssýningar á verkum Karls um áramótin 2010–11, hvað veit ég? Ef sú er raunin, verður framkvæmd­ in að heita endaslepp, því einungis helmingur safnsins var lagður undir sýninguna. Og þar sem einungis var telft fram þekktustu myndum lista­ mannsins, 35 talsins, og textar bókar­ innar bæta litlu sem engu við það sem við þegar vissum um Karl Kvaran, er ekki öldungis ljóst hvað aðstandendur sýningarinnar ætluðust fyrir. En eftir stendur auðvitað handhæg, innbundin bók með nokkrum vel prent­ uðum litmyndum og þremur misjafn­ lega gagnlegum greinum á tveimur tungumálum. Sá galli er þó á gjöf Njarð­ ar að myndir eru ekki birtar í tímaröð, svo lesandinn þarf stöðugt að fletta síðum í leit að ártölum. Heilstæð heim­ ildaskrá er heldur ekki fyrir hendi í bókinni, illu heilli. Valinkunnur Íslandsvinur, heimspek­ ingurinn Arthur C. Danto, er kallaður til að vitna um mikilvægi Karls Kvaran í alþjóðlegu samhengi. Þekking hans á verkum listamannsins er að vísu fremur takmörkuð, þarafleiðandi er fátt bein­ línis nýtilegt að finna í stuttri grein hans. Athyglisverð er þó sú skoðun hans að Karl hafi ekki farið að blómstra sem myndlistarmaður fyrr en á sjöunda ára­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.