Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 140

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2011 · 4 Hér verður ekki spurt hvar heimild­ um sleppi og skáldskapur taki við í skáldsögunni. Það gæti svo sem verið verkefni sem einhver hefði gaman af að glíma við. Ég hef ekki séð þar neitt sem beinlínis fer í bága við það sem ævisag­ an segir en hverjum manni má vera ljóst að hér er mikill skáldskapur á ferð. Saman er fléttuð raunsæisleg og í ein­ hverjum skilningi sönn eða sennileg frá­ sögn og sprettir hugarflugsins sem oft verða sannkölluð þeysireið á skáldfákn­ um. Það sem fyrst grípur lesandann er stíllinn. Ófeigur fer víða mjög nærri 18. aldar máli, líkir eftir því, en sendir jafn­ framt lesandanum skilaboð um að ekki sé allt sem sýnist; höfundur og lesandi eru staddir á 21. öld. Taka má upphafs­ setninguna sem dæmi: „Það er aðeins fyrir Guðs moldríku miskunnsemi sem við bræður erum komnir heilir í hellinn eftir ferðina suður yfir hálendið og hingað inn í myrkrið“ (7). Hér er það hin moldríka miskunnsemi sem gefur tóninn. Umfram allt er þetta auðvitað gamansöm stílblöndun en íhugull les­ andi gæti líka staldrað við og séð nýjar víddir í hinni nútímalegu samsetningu, þar sem orðið er annars vegar tengt við Guð, hins vegar miskunnsemi.1 Fleiri dæmi, oft tvíræð, mætti taka, en hver lesandi getur skemmt sér við það. Á sömu blaðsíðu ávarpar Jón konu sína beint eins og hann gerir víða. Þessi ávörp eru falleg og tjá djúpar tilfinning­ ar: „Landið er ein lifandi skepna. Lík­ ami. Og Þórunn, hve sárt er að hafa þurft að skilja við þig og okkar guðs­ myndarkríli í kroppnum, megi okkar góði Herra vera með ykkur og góð ljós­ móðir þá barnið vill hingað koma í okkar snautlegu jarðvist.“ Það er ekki annað hægt en taka ofan fyrir þeim sem svona skrifar; guðsmyndarkrílið er sannarlega alveg í anda átjándu aldar, þótt orðið sé höfundar, en orðið gegn­ umlýsir Þórunni að nútíðarhætti og sýnir okkur fóstrið. Fyrsta bréfið er stutt, aðeins tvær blaðsíður, hugarflugið beinist að því að draga upp mynd af hugsunum Jóns og tilfinningum, mynd sem er sannarlega sennileg. Eftir mynd­ ræna og ógnvekjandi en þó raunsæja lýsingu á Kötlugosinu, lýkur bréfinu í bjartsýnum tón: „Með guðs réttlæti mun öllu þessu slota og burt fjúka og niður rigna og við aftur fyrirfinnast í vorblíðum högum. Þá set ég fífil í hatt minn og kyssi þig.“ Þótt Jón sé allan sögutímann fjarri sinni elskuðu eigin­ konu og það sem segir af samlífi þeirra sé mótað af háttvísi fyrri tíma, er sagan um hann ástarsaga, gagnsýrð af ást, og skal tilfærð enn ein falleg tilvitnun til marks um það: „Ég hugsa stöðugt til þín, Þórunn, og þú ert með mér í öllum verkum. Mér finnst svo óralangt síðan ég lagði af stað úr fangi þínu á Frosta­ stöðum hingað suður þótt aðeins rúmur mánuður sé liðinn“ (15). Lýsingin á Þor­ steini bróður Jóns og sambandi þeirra bræðranna er líka fjörleg og skerpir mynd Jóns sjálfs. Hjá Jóni Steingrímssyni blandast saman lúterskur rétttrúnaður og andi upplýsingarinnar. Hann lítur á eldgos og óáran sem réttláta hirtingu guðs og ber með þolinmæði þess sem veit að öll él styttir upp um síðir, en hann hefur vísindalegt viðhorf til náttúrunnar. Þótt guð sé að baki öllu ber manninum að reyna að skilja náttúruna og nota þekk­ inguna og skynsemina til að bæta líf sitt. Þetta kemur glöggt fram í hans eigin verkum, og því er vel til haga hald­ ið í sögu Ófeigs. Nútímanum kann að þykja slíkt viðhorf þversagnakennt, en upplýsingaröldin var á öðru máli. Höf­ undur Jóns óttast heldur ekki þversagnir eða mótsagnir eins og glöggt kemur fram þegar skáldfákurinn spyrnir við
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.