Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Blaðsíða 19
TMM 2015 · 1 19
Ana Stanicevic
Mánasteinn, Munch og
expresSJÓNisminn
1.0 Forleikur
Sjón er einn af mest þýddu samtímahöfundum Íslands. Það er engin tilviljun.
Honum tekst í verkum sínum að sameina fortíð og nútíð með tilþrifum og
frásagnarástríðu. Sjón býður þjóðsögum á stefnumót við súrrealisma sem
hann hefur lengi hrifist af. Hann rannsakar sögu þjóðar sinnar og fléttar
hana saman við skáldaðar persónur og segir lesendum óvenjulegar sögur
sem aldrei áttu sér stað, nema á mörkum veruleikans og draumsins. Mána-
steinn er þannig saga.
Rannsóknarvinnan sem liggur að baki flestum skáldsögum hans, eins og
Skugga-Baldri, Rökkurbýsnum og Mánasteini, er ítarleg. Það voru þrjú þemu
sem Sjón einbeitti sér sérstaklega að í vinnunni sem leiddu af sér Mánastein:
spænska veikin, áhugi Íslendinga á kvikmyndum í árdaga þeirra og saga
samkynhneigðra í Reykjavík.1 Þess vegna er skáldsagan einnig söguleg og
lýsingar Sjóns á lífi einstaklinganna og upplýsingar sem birtast í henni eru
ekta. Samt sem áður er aðalpersónan Máni Steinn, „drengurinn sem aldrei
var til“,2 fæddur í deiglu ímyndunarafls Sjóns og þessa sögulega veruleika.
Rithöfundur sem þekkir hvern krók og kima tiltekins tímabils skrifar
skáldsögu sem geymir margar veraldir í sér. Hægt er að lesa Mánastein aftur
og aftur og í hvert sinn ratar lesandinn í nýjar áttir og uppgötvar marga ólíka
hugmyndaheima. Meðal þeirra er heimur þögulla kvikmynda sem lesandinn
getur eytt mörgum dögum í að horfa á og leita að smáatriðum sem birtast hér
og þar í draumum Mána Steins, blönduð atriðum úr hans eigin lífi. Í raun
liggur öll kvikmyndasagan undir og leiðir lesandann áfram á vit jaðarmenn-
ingar og skáldskapar í Evrópu á árunum í kringum fyrri heimsstyrjöldina.
Þar koma líka við sögu atburðir sem eru mikilvægir fyrir sögu Íslands, þar
á meðal fullveldisdagurinn 1. desember 1918 og öflugt og eyðileggjandi gos
í eldfjallinu Kötlu fyrr þetta sama ár. Lesandinn er einnig kynntur fyrir
raunverulegum áhrifum spænsku veikinnar á Íslandi á þessu sögulega ári.
Síðast en ekki síst er hversdagslegu lífi í Reykjavík á þessu tímabili lýst og um
leið hugsunum manna og hugmyndum um hið framandi.