Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 32
A n a S t a n i c e v i c 32 TMM 2015 · 1 að konan gangi í gegnum þrjú stig á ævinni – ung og saklaus stúlka, kynvera og fullþroskuð kona, og gömul og líflaus kona. Málverkið „Konan í þremur fösum“ sýnir „hina dreymnu konu − hina glaðværu konu − og konuna eins og nunnu – hana sem stendur föl bak við tré“26 eins og Munch sjálfur hefur lýst því fyrir Henrik Ibsen. Annar vinur Munchs, August Strind berg, hefur líka túlkað þetta málverk Munchs. Strindberg sá einnig þrí skiptingu í konu Munchs en hann bætti við tveimur stigum: amasónan – synduga konan – ástkonan og málaða konan – barnshafandi konan – dýrlingurinn.27 Amasónan stendur andspænis máluðu konunni. Þetta er kona eins og maður teiknar, eða málar, hana í huga sér og hún er án efa Sóla Guðb- í augum Mána Steins. Hún getur verið í mótorhjólabúningi, keyrt mótorhjól og bíl án bílprófs, klifrað upp á húsþak án þess að svima, reykt sígarettu. Hún er á fyrsta stiginu í úrvinnslu Strindbergs á konu Munchs. Það er athyglisvert að þegar Máni Steinn kemur aftur til Íslands eftir að mörg ár eru liðin þá vill hann ekki hitta Sólu Guðb-. Hann er hræddur um að eyðileggja minningu sína um hana eins og hún var. Hann er mögulega hræddur um að uppgötva að hún sé búin að breytast og fara úr einum fasa í annan. Hann vill geyma hana í minni sem fullkomna veru. Honum finnst vissulega betra að minnast hennar eins og hún er máluð í huga hans, eins og amasóna klifrandi á þökum húsa. Hún má ekki vera syndum spillt, eða barnshafandi, heldur á hún að vera áfram gyðja og músa hans. 1.7 Rauð er veröld hans öll Auk þess sem Sjón notar andstæður til að lýsa persónunum sínum á mynd- rænan og táknrænan hátt, gerir hann meira sem líkist tækni í myndlist, þ.e. hann leggur sérstaka áherslu á ákveðinn lit. Þetta gerir listamaðurinn til að skerpa mynd eða beina athygli að einhverju sérstöku sem hann vill að áhorfendur (eða lesendur í þessu tilfelli) taki eftir. Þetta er leið til að tjá sig með því að gera allt annað lítt áberandi og setja í brennidepil ákveðna til- finningu sem oft verður lykill að gátu listaverksins. Liturinn sem gengur í gegnum skáldsöguna eins og rauður þráður er svo sannarlega rauður. Þegar Katla gýs og himinninn logar í öllum litbrigðum rauðs og guls, þá er Máni Steinn staddur í sínum rauða heimi: Drengurinn horfir á þau álengdar. Þaðan sem hann stendur sér hann ekki það sem þau sjá. Hann tekur klútinn rauða úr vasa sínum. Gljáandi efnið skríður milli fingra Konan í þremur fösum (1894)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.