Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 89

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 89
H a l l g r í m u r h o r f i r á a l t a r i s t ö f l u H ó l a d ó m k i r k j u TMM 2015 · 1 89 dómkirkjunnar sem hann varð nákunnugur. Þekking á píslarsögunni og krossfestingunni urðu eðlilegur hluti heimanfylgju hans. Formleg skólaganga Hallgríms á Hólum varð að líkindum ekki löng eftir því sem sögur herma; „hann missti skólann“, sem þýðir að hann var rekinn. En sálmarnir og söngurinn sem hann kynntist á biskupsstólnum, mynd- listin, prentverkið og bókagerðin, voru hluti þess lærdóms sem hann hafði með sér út í heim á unglingsaldri. Ef til vill hafði hann þá þegar misst móður sína. Svo lítið fer fyrir Solveigu móður Hallgríms í heimildum að vel má ætla að hún hafi látist ung. Það var hlutskipti svo margra kvenna fyrr á öldum að deyja af barnsförum. Fyrr en 1620 eða 1621 hefur hún þó ekki dáið, því annað hvort árið fæddist Guðríður, litla systir Hallgríms, eins og lesa má út úr Manntalinu 1703. Skráningin í Höfðastrandarhreppi fór fram í lok mars og þá bjó Guðríður Pétursdóttir hjá dóttur sinni á Miklabæ í Óslandshlíð og er sögð hafa tvo um áttrætt. Guðríður er ættmóðir Jónasar Hallgrímssonar. Ég hef ályktað að Hallgrímur, hinn mikli sérfræðingur í þjáningunni, hafi kynnst henni snemma af eigin raun, samhliða píslarsögu Jesú. Í Heimanfylgju er faðir hans lengst af ekkjumaður á Hólum og einn að basla við uppeldið á syni sínum. Það gengur á ýmsu í samskiptum þeirra feðga í því mikla til- finningaróti sem ætlaður móður- og konumissirinn olli þeim, auk þess sem stórtíðindi urðu á staðnum, sem settu allt líf á Hólum úr skorðum. Stórtíðindaár Hinn þriðja í Hvítasunnu 1624 fékk Guðbrandur Þorláksson biskup heilablóðfall og lagðist veikur, áttatíu og tveggja ára að aldri. Í kjölfarið upp- hófst valdabarátta meðal erfingjanna, þar sem Halldóra dóttir hans hafði sigur. Þótt Guðbrandur hefði lamast í helmingi líkamans og misst málið að mestu, missti hann hvorki fulla rænu, né heldur stjórnsemina. Hann lét loka prentsmiðjunni, þar sem hann hafði prentað Jónsbók og Biblíuna, Grallarann, Sálmabókina, Vísnabókina og um 100 aðrar bækur. Prenttól- unum var pakkað niður, svo ekkert kæmist út á þrykk sem hann gæti ekki haft umsjón með. Í Heimanfylgju verður sá atburður sem Paradísarmissir fyrir bókhneigðan 10 ára drenginn. Hrun dómkirkjunnar í nóvember sama ár er þegar nefnt sem kallaði á mikil umsvif við rústabjörgun, hreinsunar- störf og enduruppbyggingu næstu misseri. Þá var sá atburður í nálægri sveit, Svarfaðardal, handan Heljardalsheiðar, að maður var brenndur á báli fyrir galdra 1625. Það var fyrsta galdrabrennan á Íslandi á 17. öld og óhug setti að fólki. Um það leyti sem kirkjan var fullbyggð lést Guðbrandur úr sótt 20. júlí 1627. Kosning um eftirmann hans fór fram í skugga válegra tíðinda sunnan úr Grindavík, af Austfjörðum og Vestmannaeyjum, sem hefur verið kallað Tyrkjaránið. Það kostaði tugi mannslífa og brottnám tæplega 400 Íslendinga til framandi slóða. Sigur í biskupskosningunni hafði dóttursonur Guðbrands, Þorlákur Skúlason, með fulltingi móðursystur sinnar Halldóru.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.