Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 99
Te d H u g h e s o g Í s l a n d TMM 2015 · 1 99 Víkingarnir og Írland Það var margt líkt með Ted Hughes og Hallberg Hallmundssyni. Báðir fæddust inn í fátækt í sveit á árinu 1930.31 Báðir urðu þeir heimsborgarar og náðu miklum listrænum þroska í gegnum öguð vinnubrögð sín. Báðir höfðu þeir einlægan og heilbrigðan metnað fyrir hönd orðsins listar. Báðir höfðu þeir mikinn áhuga á leikhúsi.32 Báðir gerðu þeir sér grein fyrir þeim heilindum og trúmennsku sem nauðsynleg eru í öllum vinnubrögðum þegar verið er að þýða ljóð og því hve viðkvæmt slíkt efni er og hversu mikil vinna felst í því að yrkja góðar þýðingar. Báðir höfðu þeir mikla smekkvísi til að bera og ratvísa eðlisávísun.33 Báðir voru þeir kvæntir amerískum konum34 sem elskuðu bókmenntir og báðir kynntust þeir eiginkonum sínum þegar þær voru að lesa bókmenntir á Fulbright styrkjum í landi tilvonandi eigin- manns. Báðar fluttu þær eiginmenn sína yfir til Ameríku og báðir lifðu þeir eiginkonur sínar.35 Gröf Sylviu Plath er á Englandi, eiginkona Hallbergs hvílir í íslenskri mold. Ted Hughes fæddist á Englandi, þar sem víkingar héldu sig á víkingatímum. Ted var mikið náttúrubarn og kom til Íslands til að veiða fisk á stöng, og til að skoða náttúruna og landslagið á Íslandi. Það var í þessari stuttu heimsókn til Íslands sem hann áttaði sig á skáldablóðinu írska sem flæðir í æðum Íslendinga. Tilvísanir 1 Daniel Weissbort (1935–2013) stofnaði, ásamt Ted Hughes, tímaritið Modern Poetry in Transla- tion. 2 Letters of Ted Hughes, Christopher Reid valdi og ritstýrði. Faber and Faber, 2007 bls. 424–425. 3 Christopher Reid skrifaði: ,Eric Walter White (1905–85), arts administrator […] at this time ran the Poetry Book Society.‘ Letters of Ted Hughes, bls. 424. 4 Hughes, Letters, bls. 423–424. „Unreal moon-land […] bleak, wonderful landscape“; þannig lýsti Hughes Íslandi þegar hann kynnti Thor Vilhjálmsson í The Institute of Contemporary Art (ICA) í London 7. júní 1996. Sjá: http://ann.skea.com/ThorVilhjalmsson.htm. Sótt 20. janúar 2014. 5 Christopher Reid skrifaði: ,Thor Vilhjálmsson (b. 1925), Icelandic novelist, was active in numerous writers’ and artists’ organisations.‘ Letters of Ted Hughes, bls. 424. Thor dó árið 2011. 6 Heimild: Guðmundur Andri Thorsson. Tölvupóstur, 30. desember 2013. 7 ,A twenty-year-old, very pretty Icelandic girl, spends her winters reading the sagas‘. Þetta kom Ted Hughes á óvart. Og hann hélt áfram: ,They ŕe an intensely literate people‘. Heimild: http:// ann.skea.com/Thor Vilhjalmsson.htm (Sjá einnig neðanmálsgrein númer 4). 8 Þekktust af bókum Hallbergs er An Anthology of SCANDINAVIAN LITERATURE, from the Viking Period to the Twentieth Century. Selected and edited by Hallberg Hallmundsson. Collier Books, New York, 1965. Kynningar á skáldunum og verkum þeirra og all margar þýðinganna eru eftir Hallberg. 9 Síðustu lífsdaga sína gat Hallberg, sem haft hafði unun af að glíma við orð á ýmsum tungu- málum, aðeins notað tvö orð: „já“ og „nei“. Hann veiktist af krabbameini, eins og Ted Hughes, en skyldi læknast með hinu eitraða krabbmeinslyfi ,vinchristie‘ sem lamaði hann í fótum og hálsi. 10 Frumortar ljóðabækur Hallbergs á íslensku eru sextán talsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.