Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 111
„ D u l a r f u l l u r g e s t u r“ TMM 2015 · 1 111 Var þessi harðneskjulegi hamur Ástu, sem Kaldal lagði alla áherslu á við myndasmíð sína, og hafa fylgt henni síðan, úrræði hennar við mis- þyrmingum sem hún sjálf varð fyrir sem barn? Eða var freðinn svipurinn á myndunum og hegðunin, sem hún varð kunn af, manneskju sem gerðist forfallin aðdáandi tískunnar á sínum bestu árum um og upp úr miðri síðustu öld? Tækifærismyndir af henni bera vott um annað. Þær vitna um öllu ljúfara geð. Að hversu miklu leyti ljósmyndarinn Kaldal, sá mikli listamaður, tók undir með Ástu eða sneið henni sjálfur gervið verður ekki svarað, en hitt er víst að hann átti með list sinni sinn þátt í að festa hana í því. Hryllingssögur ganga ekki upp í lokin; það er einkenni þeirra. Sögur Ástu eru brautryðjandaverk af því tagi. Hún var ekki ljóðskáld, þótt birst hafi eftir hana á prenti nokkur frambærileg ljóð. Eins og fyrr segir hefur samband Ástu við móður sína verið álitið undirrót að uppreisnargirni hennar á fullorðinsárum hennar, jafnvægisleysi hennar og beiskju. En hún átti tvennt til, ekki síður en stjúpi föður hennar, Markús, eftir lýsingu séra Árna. Ef að líkum lætur þurfti meira en karp um trúmál til að beina listakonunni á þá braut sem varð hennar á fullorðinsárunum.8 Bærinn Litla-Hraun stendur við sjóinn, efst á Mýrunum. Snæfellsjökull í viðráðanlegri fjarlægð sem hún seinna lýsti í áðurnefndri tímaritsgrein af gjörhygli og af mikilli þekkingu á staðbundnum orðatiltækjum. Greinin „Frá mýri, hrauni og fjörusandi“ er umhverfislýsing Ástu á heimahögunum; greinin er ljóðræn hugleiðing um gróðurfar og dýralíf. Faðirinn, Sigurður, bjó með móður sinni á þessari eignarjörð þeirra ásamt Markúsi Ívarssyni frá því sonurinn Sigurður var um tvítugt uns móðir hans, Ástríður, lést 1929, þegar Sigurður var um fimmtugt. Markús var þá látinn fáum árum fyrr. Eftir lát Ástríðar tók Sigurður, sonur hennar, að búa með Þórönnu Guð- mundsdóttur frá Fáskrúðsbakka, sem er nokkrum tugum kílómetra til norðurs frá Litla-Hrauni. Þóranna var tíu árum yngri en Sigurður. Hann reyndist ekki vera búmaður að upplagi, hvorki fyrr né síðar; var meira fyrir bókina og hverskyns fróðleik – eins og Ásta. Hann var sjálfmenntaður á ensku og dönsku. Tveimur árum eftir að Ásta kom í heiminn fæðist þeim hjónunum á Litla-Hrauni önnur dóttir, Ástríður Oddný, sem varð hjúkr- unarfræðingur á fullorðinsárum. Fleiri börn áttu þau hjónin á Litla-Hrauni ekki. Móðir Ástu, Þóranna, var ólík manni sínum; hún var búkona og gaf lítið fyrir grúsk hans. Foreldrar hennar höfðu slitið sambúð meðan hún var barn og móðirin flutt til Vesturheims. Eftir það var Þóranna alin upp af föður sínum og stjúpu. Við umskiptin varð hún einþykk, lokuð og þegar lengra leið varð trúin hennar athvarf. Þóranna lærði fatasaum og húshald í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Vonbrigði í ástum hertu hana enn. Hún gerðist aðventisti. Á búskaparárunum sinnti hún, að hætti strangtrúaðra aðventista, aðeins helstu nauðsynjaverkum frá föstudagskvöldi til laugardagskvölds. Yngri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.