Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 116
116 TMM 2015 · 1 Bryndís Björgvinsdóttir: Forseti Íslands og aðrir gestir, Takk fyrir verðlaunin. Ég verð að viðurkenna að ég er glöð og hissa í senn – en ég get ekki sagt að ég hafi búist við því að fá þessi verðlaun fyrir ritstörf strax. Ekki fyrir sextugt og hvað þá fimmtugt. Ég er enn á þeim stað í mínum ritferli að ég er oft efins og jafnvel ekki viss um að ég geti skrifað bækur yfirhöfuð. Jú, ég gat vissulega skrifað þessa bók – en hef ekki hugmynd hvort þær verði fleiri. Ég var ansi lengi með þessa bók í maganum, eins og sagt er, án þess að hafa hugmynd um að útkoman yrði eins og varð, en mig langaði lengi til að skrifa sögu innblásna af frænda og frænku sem ég kynntist aldrei en hafa engu að síður verið mér hugstæð. Hann var náttúrubarn, uppfinningamaður, góðmenni, einsetumaður og skrifaðist á við aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Dag Hammarskjöld, um friðar mál, sjálfbæra orku, lífræna ræktun og fleiri hugðarefni. Og þó: Við vitum ekki nákvæmlega um hvað hann skrifaði því eftir að hann frændi – Ingimar – drukknaði voru dagbækur hans og bréf sett í haug og brennd. Hún frænka – Hallbera – var kosin ungfrú Hafnarfjörður í Bæjarbíói, þótti gustmikil, kjaftfor jafnvel, smart og sniðug. Hún fór sínar eigin leiðir eins og Ingimar en á ólíkan hátt og endaði ævina í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hún lést árið 1993 þá orðin Vottur Jehóva. Og þó: Sagan segir að hún hafi farið með íslenskar klámvísur á samkomum vottanna, á íslensku – og þeir hafi bara sagt: Amen og hallelúja. Þessar tvær persónur höfðu lengi haft undarleg áhrif á mig. Þær virtust mér svo glaðværar og gáfaðar í senn. Flippaðar (eins og sagt er í grunn- skólum landsins) en um leið voru örlög þeirra undarleg og áhugaverð, jafnvel dapurleg líka – og Ingimar var mörgum harmdauði þegar hann dó af slys- förum, drukknaði þar sem hann réri sínum árabát í vondu veðri. Og velti ég þá gjarnan fyrir mér: Af hverju fór hann út á báti í slíku veðri? Var það náttúrubarnið sem réði för, eða forvitni vísindamannsins? Eða gott hjartalag – hafði hann kannski gefið einhverjum loforð sem honum fannst hann verða að standa við? Það voru spurningar eins og þessar sem urðu til þess að mig langaði til að skrifa sögu innblásna af Ingimar. En ekkert gekk. Ég átti erfitt með að ímynda mér að ég væri einsetumaður og uppfinningamaður í Hafnarfirði um miðja síðustu öld. Hjólin tóku hinsvegar að snúast þegar ég tók að skrifa unglingabók um ástir og átök í tíundabekk rétt fyrir árið 2000 (sem stóð mér mun nær). Og þá sá ég allt í einu að ég gæti fléttað inn í hana sögu innblásna bæði af Ingimar og Hallberu. Þess vegna má segja að Hafnfirðingabrandarinn fjalli um tvær kynslóðir Hafnfirðinga. Og þess vegna er bókin líka svona þykk. Mig langar til að þakka Höskuldi og Fróða fyrir allan stuðninginn en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.