Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 118

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 118
118 TMM 2015 · 1 Ófeigur Sigurðsson: Herra forseti, háeðla excellentz, velbornu háæruverðugu dyggðumprýddu og náðarsamlegustu gestir. Aðrir. Herra forseti og hæ allir hinir. Herra forseti, frú Dorrit, Sámur, og aðrir dyggðumprýddir gestir. Mér hafa lengi þótt auðnir, hraun, sandar og rofabörð veita innsýn í sjálfan manninn, og stöðu hans í heiminum, að um öræfin liggi gáttin að hjartanu, sálinni, skáldskapnum, og að gróðurinn og borgarlandslagið sé aðeins yfir- borðið, siðferðið, húðin, dula dregin yfir sannleikann. Skáldsagan Öræfi er óður til öræfanna, og ekki bara sveitarinnar, hálendisins og allrar óræktar og eyðingar eftir náttúruhamfarir, heldur einnig öræfanna hið innra, þar sem hin eiginlega eyðimerkurganga fer fram, þar sem alltaf er allra veðra von, þar sem við lendum daglega á hæpnum slóðum. Þannig hefur mér fundist vera bein tengsl á milli öræfa landsins og undir- vitundar þjóðarinnar, ef svo má segja, en undirvitundir eru sennilega stygg- ustu og viðkvæmustu skepnur jarðar, og þeim verður að sýna nærgætni og aðgát ef reynt er að nálgast þær, skást auðvitað að láta þær bara í friði. Öræfi reynast því ágætur mælikvarði á geðheilsu þjóðarinnar, sem helst stafar hætta af framsókn í nafni þjóðmenningar, framkvæmdum, framleiðslu og öllu sem byrjar á fram-. Eða hvað er þjóðmenning? Andleg og verkleg menning þjóðar, segir orðabókin. Það er allt og sumt. Er það þá ekki þjóðmenning að ung kona varpi sér nakinni fram af bjargi eina óveðursnótt um miðja 18du öld? eða er það jafnvel þjóðmenningin sjálf sem neyðir hana í slíkan hrylling? Skyldi þjóðmenning dagsins í dag vera þess megnug að vera slíkur sjálfsskaðari? Ég hef það stundum á tilfinningunni að dulvitund þjóðarinnar sé flúin ofan af öræfum alla leið niður í bæ, og skrimti þar við uppsprengt leiguverð í 101um, í hinum svokölluðu lundabúðum, að þar búi kjarninn í okkur sjálfum, andleg og verkleg menning, þjóðmenningin, sem er ekki einu sinni séríslensk lengur heldur internasjónal; sjálfur fer ég alltaf í lundabúðir erlendis þar sem seldar eru sjálfsmyndir þjóða sem aldrei hafa verið til, og eftilvill væri hollt fyrir stóru sálina, þjóðarsálina, ef sumir stjórnmálaflokkar spegluðu sig í þessum búðum og finndu sjálfsmynd sína, héldu þar jafnvel flokksþing. En nú sigli ég hraðbyri í neikvæðni og slíkt er varla smekklegt á svoddan gleðistund og varpa mér því útbyrðis í nafni þjóðmenningarinnar, og ætla að reyna að ná til lands. Mig langar til að tileinka þessi verðlaun Öræfingum sem opnuðu fyrir mér dyr sínar að þessari einstöku veröld, með þeirri óþvinguðu gestrisni sem kennd er við Skaftafellssýslurnar. Þeir Öræfingar gjalda nú fyrir það með þessari bók. Þegar ég kom þangað í fyrsta sinn ellefu ára gamall var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.