Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 142

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 142
D ó m a r u m b æ k u r 142 TMM 2015 · 1 Noregi, þá undir ægivaldi Verkamanna- flokksins. (Universitetsforlaget Oslo 1963.) En norski verkamannaflokkurinn stóð með verkalýðshreyfingunni – að öðru leyti varð valdastefna þessara tveggja annars gjörólíku flokka svipuð að mörgu leyti. Völdin eru vandmeðfar- in og spilla flestum sem hafa þau til langframa. Þegar flokkur er farinn að njósna um samferðamenn sína úr öðrum flokkum þá er voðinn vís. Hér er ekki verið að líkja neinum við eins- flokksríkin í Austur-Evrópu en hugur- inn leitar óhjákvæmilega þangað, ekki síst til þeirra ríkja eins og Austur-Þýska- lands þar sem komið var á gervifjöl- flokkakerfi. Þar voru flokkar með ýmsum nöfnum sem höfðu jafnvel alþjóðleg samskipti. Einn þeirra Þýski bændaflokkurinn var til dæmis í reglu- legum samskiptum við Framsóknar- flokkinn hér á landi. Vissulega réði Sjálfstæðisflokkurinn ekki alveg öllu á Íslandi og við bjuggum aldrei við einsflokksstjórn en hann hafði hæfileika til þess að tengjast í allar áttir; það lá í eðli Ólafs Thors sem var formaður Sjálfstæðisflokksins fram yfir 1960. Framsóknarflokkurinn gegndi mikilvægu hlutverki í að takmarka völd Sjálfstæðisflokksins, það gerðist einkum úti á landi og utan höfuðborgarsvæðis- ins í kaupfélögunum og í samvinnu- hreyfingunni; oft varð hann samt allt of líkur Sjálfstæðisflokknum. Alþýðu- flokkurinn var líka samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins langtímum saman en varð því miður stöðugt líkari honum að hugmyndafræði í efnahagsmálum að ekki sé minnst á utanríkismálin eftir 12 ára viðreisnarstjórn. Meira að segja Sósíalistaflokkurinn vann með Sjálf- stæðisflokknum í ríkisstjórn í tvö og hálft ár, nýsköpunarstjórninni, sem hentaði báðum flokkunum við að eyða stríðsgróðanum og að byggja upp íslenskt atvinnulíf, velferðarkerfi og skólakerfi. Það segir reyndar sitt um þroskastig stjórnmálaumræðunnar á Íslandi að einn aðalhugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins telur að Sósíalista- flokkurinn hafi notað tímann í nýsköp- unarstjórninni til að búa sig undir bylt- inguna. Höfðu skrif Morgunblaðsins innan úr flokknum hjá okkur áhrif? Ekki á þeim árum sem Styrmir fjallar um. En Styrmir og Morgunblaðið héldu áfram iðju sinni eftir 1968 með því að vaða inn í hreyfingu vinstri manna á skítugum skónum, komust þannig inn á gafl í Alþýðubandalaginu eftir 1985 og seinna í Vinstri hreyfingunni, grænu framboði. Kannski gerir Styrmir grein fyrir því í næstu bók? Og gaman væri að vita hverjir þeir voru þá uppljóstrararnir. Sjálfstæðisflokkurinn hafði – alls- herjarvald á Íslandi í áratugi. Flokkur- inn trylltist þegar hann missti völdin; verstur varð hann 1956–1958. Hann fór algerlega á límingunum 2009–2013. Aðrar eins aðfarir hafa aldrei sést fyrr eða síðar í íslenskum stjórnmálum sem betur fer. Kaflaskipti urðu með Reykja- víkurlistanum 1994. Þó er vald Flokks- ins enn allt of mikið og það þarf að breytast. Geta orðið ný kaflaskipti á næstunni með nýjum landvinningi vinstri manna? Þá þurfa þeir að horfa á heiminn í stóru samhengi um leið og þeir leggja rækt við íslenska menningu, jöfnuð, lýðræði, sterkt velferðarkerfi, vandað menntakerfi og hafna misrétti og kunna að virða sjálfbæra þróun í efnahagsmálum þó það kosti minni lífs- kjarabata en ella væri. Vonandi tekst að finna nýja sameiginlega pólitíska hugs- un vinstri manna. Svo mikið er víst að menn kaldastríðsins tefja þá för ekki mikið lengur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.