Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Page 110

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Page 110
108 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR Summary. Sérhverri grein skal fylgja yfirlit á ensku. Sé það í aðalatriðum þýðing á íslenzka yfirlitinu, en má þó, ef ástæða þykir til, vera ýtarlegra en hið íslenzka. Þakkarorð. Vilji höfundur þakka nánum samstarfsmönnum, sem unnið hafa að rann- sókninni, svo og stofnunum eða sjóðum, sem lagt hafa aðstöðu eða fjárveitingar af mörkum og stuðlað að því, að rannsóknin varð fram- kvæmanleg, skal það gert í sérkafla á undan heimildaskrá. Heimildarrit. Ritgerðir og aðrar heimildir, sem vitnað er til, skal skrá í lok ritgerðar, en ekki samin ritskrá yfir áðurunnin verk á sviði rannsóknarinnar, sem ekki er vitnað til. Skrá skal ritgerðir í stafrófsröð eftir föðurnöfnum höfunda, en síðan skírnarnöfn (séu þau íslenzk), eða fyrsta bókstaf þeirra (séu þau erlend) og skal aðskilja með kommu. Sé vitnað í fleiri en eina ritgerð eftir sama höfund, skulu þær skráð- ar í tímaröð. A eftir nafni aðalhöfundar skal skrá meðhöfunda. Þá skal skrá útgáfuár rit- gerðar, heiti, rit, árgang og fyrstu og síðustu blaðsíðutölu. Sé ekki um ákveðinn höfund að ræða, skal skrá stofnun eða útgefanda, útgáfuár og útgáfustað. Sé um erlendar ritgerðir að ræða, skulu [rær skráðar á frummálinu eða í enskri þýðingu og þá hafður hornklofi utan um fyrir- sögn greinarinnar. Hér að neðan eru sýnd nokkur dæmi: Fisher, R. A., 1958: Statistical methods for research workers, 13th. edit. Oliver and Boyd, Edinburgh-London. 356. GÓRECKI, J., 1968: [The estimation of the ef- fectivness of the present system of popul- arization of agricultural knowledge.] Zesz. nauk. S. G. G. W. Ekon. Org. Roln. Z., 8: 29—50. Summary. SiGURÐSSON, Björn, 1952: Bólusetning gegn garnaveiki. Freyr, 47: 215—227. TILVITNANIR f TEXTA í texta skal vitnað til fyrri rannsóknar með því að skrá á eftir tilvitnun höfundarnafn og ártal ritgerðar í sviga. Höfundarnafnið skal skráð með upphafsstöfum og notað eftirnafn, nema þegar frekari aðgreining er nauðsynleg og um íslenzka höfunda er að ræða. Séu fleiri en tveir höfundar að grein, sem vitnað er til, skal skrá fyrsta höfund, en síðan stafina et al. TÖFLUR, MYNDIR OG TEIKNINGAR Töflur skulu vélritaðar á sérstök blöð og gef- in númer eftir því, hvar þær eiga að birtast í texta. Yfirskrift töflu á að vera stutt og með sjálfstæðri skýringu á efni. Þar undir skal koma enskur titill á töflu. Takmarka skal end- urtekningu í texta á því, sem birt er í töflu. Þurfi að skýra töflu nánar, rná gera það í neðanmálsgrein undir henni. Myndir þurfa að vera skarpar og skýrar á hvítum gljápappír. Myndum fylgi texti á ís- lenzku og ensku. Línurit skulu gerð með pennateikningu, „tusch“, á hvítan pappír eða glæjan teikni- pappír. Rúðustrikaðan pappír skal yfirleitt ekki nota og þá aðeins blástrikaðan. Bezt er, að allar teikningar séu þannig gerðar, að gert sé ráð fyrir fjórfaldri minnkun. Texta má skrá laus- lega með blýanti eða vélrita á sér blaði. Skal liann vera bæði á íslenzku og ensku. Myndir og línurit skulu fylgja laus með handriti. Aftan á þau skal skrifað með blýanti hlutaðeigandi númer. I texta skal skrifa þetta númer, þegar vitnað er til myndar eða línurits, þannig: „Mynd 1“, „Tafla 11“ o. s. frv. Á spássíu handrits skal skrá, hvar hlutaðeigandi mynd óskast sett. Sé myndum raðað saman á mynd- síðu, má merkja þær bókstöfum. KAFLAFYRIRS AGNIR Aðalkaflafyrirsagnir skulu skráðar inn á miðri síðu með upphafsstöfum, en síðan má skipta efninu niður í undirkafla og þeim aftur í smærri einingar. Þessa undirkaflaskiptingu skal merkja þannig eftir röð: Með upphafsstöfum við spássíu, undirstrikað við spássíu, undirstrikað við spássíu og gleiðu letri, undirstrikað í upphafi línu. Þessir undir- kaflar skulu ekki merktir með tölum, en sé þörf á frekari skiptingu, skal tölusetja 1), 2) og síðan a), b) o. s. frv. Handritið skal vera ritað samkvæmt reglugerð um íslenzka nútímastafsetningu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.