Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 125
tímann. Hjúkrunarkona kembir börnunum. I vetur liafa börnin fengið
lýsi á hverjum degi; leggur bærinn það til.
Skipaslcaga. Kennarar skólans vigtuðu börnin í haust og miðjum
janúar 1934. Útkoman var þá, að al' 139 börnum, er vigtuð vorii,
höfðu 101 þyngzt, 20 staðið í stað og 18 létzt, llest um */* kgr. livert.
Eftirlit með skólanum og heilsu barnanna hafði ég, utan hinnar
föstu skoðunar, stundnm daglega eða þá með nokkurra daga millibili.
Kennarar skólans héldu veikindaskrá fyrir livern bekk.
Borgarfj. Kennslustaðirnir sumir tæplega viðunandi.
Borgarnes. Eg hefi þá trú, að heibrigðiseftirlit í skólunum beri
góðan ávöxt, þegar fram í sækir; börnunum er sagt svo margt ár eftir
ár, sem þeim má að gagni koma, og þau venjast smátt og smátt á
að hirða líkama sinn. Bað (ker eða steypibað) mun ekki vera á
skólastöðunum og fæstum heimilum, en l)örnin hafa verið mjög hvött
til þess að þvo líkama sinn, helzt ekki sjaldnar en einu sinni í vilui,
og óhætt er mér að segja, að hreinlæti fari vaxandi.
Dala. Engar teljandi hreytingar á kennslustöðum farskólanna, hvorki
til hins hetra né verra. Kennslustaðir 32 í 8 skólahéruðum. Nemendur
húsmæðraskólans á Staðarfelli voru skoðaðir í byrjun skólaársins.
Bíldudals. Öll börn, er gengu á barnaskólann í Bíldudal, voru
skoðuð um það levti, er skólar byrjuðu í haust. En inni í fjörðum
fer einnig fram barnakennsla án alls lieilbrigðiseftirlits.
Pingegrar. Skólaskoðun l'ór fram í byrjun námstímans í öllum
starfandi skólum héraðsins.
Flateyrar. Barnaskólinn á Flateyri, sem alltaf hefir verið ólientugur
og' ófullkominn, er nú orðinn langt of lítill. Er brýn nauðsyn að reisa
nýjan skóla og mun gert, ef fé fæst lil þess.
Reijlcjarfj. Gott skólahús hefir barnaskólastjórinn reist miðsveitis
i Trékvllisvík. Oánægja og þræta hefir risið út af því að liafa fastan
skóla, og er sú deila ekki útkljáð enn.
Miðfj. Um skólastaði er svipað að segja og áður, að þar er ýmsu
ábótavant, en erfitt úr að bæta eins og stendur. Nýbyggt samkomu-
hús í Ytri-Torfustaðahreppi, hitað með laugavatni, er nokkuð af
vetrinum í vetur notað til barnakennslu.
Siglufj. Sú nýbreytni hefir verið tekin upp á þessu ári, að öllum
börnum í barnaskóla kaupstaðarins er gefið lýsi (15 grm.) og brauð
til 1)1 •agðbætis á eftir. Skólanefndin æskti þess og fastlega, að börn-
urn af fátækari heimilum yrði einnig gefið V* lítr. af mjólk á hverj-
um degi, en þar stoppaði fjárhagurinn.
Svarfdœla. Nú var loks, eftir langvinnt jag, reist skólahús á Dal-
vík, og var því lokið svo snennna, að ekki þurfti að nota gamla
skólahúsið nema hálfsmánaðartíma fyrst. Er hið nýja skólaliús vel
vandað, kennslustofur hjartar og' rúmgóðar, miðstöðvarhitun, rafljós,
ræstingarklefar, vatnssalerni. Stór lóð fylgir húsinu, og er þar rúm-
góður leikvöllur. I Hrísey var byrjað á að reisa skólahús, en þetta
ár var gamla skólahúsið notað og leigustofa í kauptúninu eins og í
fyrra fyrir eina deildina af 3, er þar sækja skóla daglega. A hinum
skólastöðunum hafa engar teljandi breytingar orðið á húsakynnum
skólanna.