Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 81
79
koti. Þar var infection með frá byrjun og hcfði átt að teljast febr.
puerperalis á mánaðarskrá, sem láðist og er svo sleppt nú á öðrum
skýrslum. Þessi kona tá tangt fram í febrúar. I desember átti tiún
svo barn, og' tók bóndi móti, en tjósmóðir kom síðar og dvaldi þó
aðeins einn dag. Konan fékk á 14. degi blæðingarvott og' báan hita,
en nánar veit ég eigi um það, með því að aðeins eiiiu sinni var talað
við mig í síma nema að henni batnaði fljótlega. Fékk seinna að
vita, að uin infection í brjósti liefði verið að ræða. Takmörkun
barneigna gengur bölvanlega, þó að vilji sé víða til. Það, sem rosknu
konurnar kunna að spara, vinna unglingsstútkur upp (13 frumbyrjur
móti 19 fjölbyrjum þetta ár). Flest eru frumbyrjubörnin óskilgetin
eða !) alls, en mæðurnar sjálfar nýskriðnar af koppnum margar.
Þarna eru að verki frjálsar ástir og margt gott úr koniinúnisma.
Ekki virðast þó þessar barneignir ætla að verða stelpugreyjunum til
gleði og gæfu, sem auðvitað stafar af því, að byltingin er ekki nema
liálfköruð eldri kynslóðin leggur ekki rétta virðingu á, og' ríkis-
fyrirkomulagið úrelt.1)
Pistilfj. Abort virðist yfirleitt fátíður; að minnsta kosti á hann sér
þá stað án þess að ég viti af. Abort. provoc. veit ég' ekki til, að komið
liafi fyrir.
Vopnafj. Tilefni læknisaðstoðar venjulega, að óskað var nærveru
læknis og' deyfmgar. Tvisvar var barnið tekið með töng. í annað
skiptið var tilefnið, að fæðing gekk seint eftir að fullkomin útvíkkun
var komin. I binu tilfellinu var beðið svo lengi sem fært þótti vegna
barnsins, eða 2'/-> sólarbring, en útvikkun ekki fullkomin, er löng var
lögð á. Þetta var primipara með mjög þrönga grind (systir konu, er
lór til Akureyrar til að láta'gera á sér sectio cæsarea. Hafði sú kona
áður átt tvö börn; var fyrra barnið limað frá henni, en hinu síðara
var náð með vendingu og fyrir tíma; náðist þó ekki lifandi). Barnið
náðist lifandi, en konan bilaðist talsvert (rupt. perinei & vaginae), og
var reynt að gera við það eftir föngum.
Seyðisfj. 38 ára primipara með sóttleysi; spontan fæðing eftir 2
tbymophysin-inj.; barnið kom andvana með macereraðar neglur. Tvis-
var töng á primiparae og í öðru tilfellinu manuel placentalosun.
Berufj. Ekkeri fósturlát, sem ljósmæðra hefir verið vitjað til, hefir
komið fyrir. En læknir hefir fengið til meðferðar 3 tilfelli.
Síðu. Fósturlát munu vera fremur fátíð, en þar sleppur vafalaust
allt af eitthvað undan framtalningu. Ljósmóðirin í Alftaveri var sótt
lil einnar konu á þessu ári, vegnu mikilla blæðinga við fósturlát.
Abortus provocatus liefi ég aldrei talið ástæðu til að framkvæma.
Takmörkun barneigna mun varla þekkjast hér, nema ef menn nota
eitthvað af hinum gömlu húsráðum, og barneignir eru í seinni líð
svo strjálar, að mér. hefir ekki virzt þörf á að kenna mönnum
takmörkun þeirra. Annars væri þörf á, að heilbrigðisstjórnin gæfi
héraðslæknum holl og nothæf ráð um þessi efni. Stundum kemur
það fyrir, að þörl' er að veita þau ráð, og er þá nauðsyn að vita um
hin nýjustu og þau, sem reynast bezt.
í) Sjá neðanmátsgr. á bts. 77.