Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 33
31
haldið áfram, unz talið var, að sjiiklingurinn væri smitunarlaus. Þessi
hettusótt hreiddist ekki út.
12. Kveflungnabólga (pneumonia catarrhalis).
13. Taksótt (pneumonia crouposa).
Tötlur II, III og IV, 12—13.
Sjiiklingafiöldi 1924 1933:
1924 192Ú 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933
Sjúkl.1) 1012 804 925 1282 875 795 851 788 583 481
2) 584 278 185 218 183 241 274 392 303 199
Dánir 238 127 107 95 84 112 152 157 107 104
Lungnnbólgutilfelluni fer sífellt fækl' ;andi síðastliðin (> ár , en ekki
minnkar manndauðinn úr þessari sótt að sama skapi.
Læknar láta þessa getið:
1. Um kveflungnabólgu:
Rvík. Dánarskýrslur telja 40 dána úr kveflungnabólgu og aðeins 7
úr taksótt. Kveflungnabólgan hefir þó að engu verið frábrugðin þetta
ár og ekkert verið getið um, að luin væri venju fremur þung. Og
ekki er hægt að setja hana i samfiand við inflúenzuna, þ\í að ekkert
itar meira á henni þann tíma, sem hún gekk hér. Ef ég á að gizka
á eitthvað um þetta efni, þá er 'nú fyrst það, að gera má ráð fyrir,
að taksóttin eigi eitthvað af þeim dánu, en svo er annað, sem mér
hefir dottið í hug, og- ég þykist hafa tekið eftir stundum, að kvef-
lungnabólga eða lungnabólga sé talin aðalsjúkdómur á (lánarvottorð-
um sjúldinga, sem veikir hafa verið áður af öðrum orsökum en fengið
lung'nabólgu secundært og taldir fram sem veikir af fungnabólgu. Þetta
mun koma fyrir á sjúkrahúsum og helzt þá er um post-operativan
dauða er að ræða, en einnig oftar. Það má sjálfsagt deila um, hvort
þetla sé rétt eða ekki,3) en þessi aðferð getur látið kveflungnabólgu
eða taksótt, sem faraldur, líta miklu ver út en þær eiga skilið.
Skipaskaga. Varð vart í sambandi \ið kvefsóttina í nóv. desem-
lier; kom þá aðallega niður á börnum, og urðu sum þeirra þungt
haldin.
Hólmavikur. Af kveflungnabólgu veiktust nokkrir, einkum ungbörn,
sum all-þungt. Fara venjulega saman slæm húsakynni og hræðsla
fólksins við loftræstingu annars vegar og' þung veiki hins vegar.
1) Pneumonia catarrhalis.
2) Pneumonia crouposa.
3) fað er tvimælalaust rangt. Hinn upphallega sjúkdóm skal telja aðaldauðamein,
]»ó að lungnabólga fylgi og geri ef til vill gæfumuninn. Sjúklingur, sem skorinn er
upp vegna krabbameins, fær lungnabólgu upp úr aðgerðinni og deyr, skal teljast
dáinn úr krabbameini, en geta skal sem aukaorsaka lungnabólgunnar og aðgerðar-
innar. Sjúkdómar, sem lungnabólga má teljast heyra til, svo sem inflúenza, mislingar
og' kikhósti skulu, er þeirleiða til dauða með lungnabólgu, að sjálfsögðu teljast dauða-
meinið, og' i slikum tilfellum er ckki rétt að telja lungnabólguna á sjúkraskrám
undir sjálfstæða lungnabólgu, en aðeins g'eta hennar i athugasemd sem fylg'ikvilla
við þá sótt, sem um er að ræða. Lungnabólgu, sem kemur upp úr venjulegu kvefi
verður þó ekki komizt hjá að telja sem sjálfstæðan sjúkdóm og nefna sem aðal-
dauðamein, ef til dauða dregur.