Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 118
116
íneðal yngra fólksins og þá lielzt á skemmtisamkomum, en sjaldnast
munu þar drukkiu Spánarvín. Brugg lieyrist oft nelnt á nafn, en ekki
í sambandi við neina vissa menn, enn sem komið er. Tóbak, einkum
vindlinga, reykja ungu mennirnir og ungu stúlkurnar enda líka. I
sveitunum er hvorttveggja, áfengi og tóbak, miklu minna um hönd
haft, en kaffi er allsstaðar drukkið mikið.
Þingeyrar. Áfengisnautn er eigi alinenn, og drykkjuskapur þekkist
eigi, nema hvað 2 til 3 menn snertir. »Landi« og l)rugg er óþekkt.
Spánarvín lítið notuð. Er ástandið gagnólíkt því, sem var, áður en
bann komst á, og vonandi verða sterkar hömlur á sölu sterkra drykkja,
þegar innflutningur þeirra verður leylður. Uuga fólkið eyðir of fjár
í sígarettur. Pó virðist mér, að fremur sé að draga úr notkun þeirra.
Flateyrar. Áfengisnautn hefir engin verið í ár. Ekki mun svo sem
hálf klukkustund hafa glatazt hér frá vinnu í allt sumar vegna ölv-
unar. Má það ágætt kallazt í plássi, þar sem fullt hundrað manna
hafa stöðuga atvinnu. Bj'ugg er ekkert.
Hesteyrar. Héraðsbúar eru bindindissainir; neyta l'æstir áfengis. Kafli
er aðaldrykkurinn. Tóbak talsvert notað.
Reykjarfj. Áfengi sama og ekkert notað; aldrei sendingar frá Áfengis-
verzlun ríkisins; brugg sama sem ekkert. Kaffi mikið notað og' það
hjá bláfátæku fólki. Af tóbaki mun neftóbak langmest notað og sígar-
ettur nokkuð.
Miðfj. Áfengisnautn allt af talsverð, þrátt fyrir kreppuna, enda ódýi't
að brugga.
lilönduós. Áfengisnautn mun ekki vera sérlega mikil hér, enda er
talið, að mjög lítið sé um heimabrugg hér í Austur-Húnavatnssýslu.
Kafti- og tóbaksnautn talsverð, og virðist mér húsfreyjur óeðlilega
birgar af allskonar sætabrauði, þótt maður komi á heimili þeirra að
þeim óvörum. Sýnir kreppan sig áreiðanlega í öðru frekar en minnk-
aðri kaffidrykkju eða kökuáti.
Sauðárkróks. Hér verður að segja þá sorgarsögu, sem víðar heyrist,
að drykkjuskapur fer vaxandi, sérstaklega meðal yngri manna og
kvenna. Menn eru hættir að fara í launkolá með heimabruggað áfengi.
I’að er drukkið svo að segja opinberlega á mannfundum og sam-
komum. Ber meira á þessu í sveitinni í mínu héraði heldur en í
kauptúninu. Menn hafa kvartað um það við mig, að varla sé sú
samkoma í sveitinni, að menn séu þar ekki meira og minna ölvaðir,
og það eingöngu af heimabrugguðu áfengi. En vegna þess, hve Iiegn-
ingin sé ströng við þessum afbrotum, verði engiun til að kæra, því
að þá séu þær fjölskyldur, sem þetta aðhafast, komnar á sveit og
eyðileggingu undirorpnar, og sveitarþyngslin eru nóg fyrir, þó að ekki
sé hætt við þau. Samfara vínnautn ágerast einnig vindlingarevkingar,
svo að miklu munar.
Höfðalwerfis. Áfengisnautn hefir \erið lítil, en þó virðist mér hal'a
l)orið heldur ineira á henni þetta árið og næstum eingöngu á skemmti-
samkomum og í Akureyrarferðum. Vafalaust á »landinn« sök á þessu,
hvaðan svo sem hann kemur. Kaffi er mikið drukkið við sjóinn, en
sumstaðar lítið á sveitabæjum. Tóbaksnautn er svipuð og verið hefir,
en þó fer heldur í vöxt, að ungar stúlkur reyki vindlinga.