Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 123
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
123
þjóðgarðsins skal vera friðað í því skyni
að varðveita ásýnd þess sem helgi-
staðar þjóðarinnar og til að viðhalda
eins og kostur er hinu upprunalega
náttúrufari [3. gr.]“. Í Þingvallavatns-
lögunum (85/2005)4 segir ennfremur:
„Innan þjóðgarðsins er óheimilt að
gera nokkuð það sem getur spillt vatni
eða mengað það, bæði yfirborðsvatn og
grunnvatn [3. gr.]. … Vernda skal lífríki
Þingvallavatns og gæta þess að raska
ekki búsvæðum og hrygningarstöðvum
bleikjuafbrigða og urriðastofna sem nú
lifa í vatninu [4. gr.].“ Ákvæðin eru mjög
skýr um verndun lífríkisins í vatinu og
því hefði mátt búast við að nefndin léti
til sín taka þegar í matsferlinu kom fram
rökstuddur grunur um að vegur 365
hefði neikvæð áhrif á lífríki vatnsins.
Svo að segja allir þar til bærir vísinda-
menn á landinu voru sammála um það.
Rannsóknir bentu til þess að vatnið væri
þegar undir áhrifum ofauðgunar og að
vaxandi bílaumferð, samkvæmt spá
Vegagerðarinnar, myndi óhjákvæmilega
auka það álag. Reynslan sýnir að ofauð-
gun getur haft mikil áhrif á búsvæði og
afkomu fjölda tegunda í vatninu.
Ef marka má fundargerðir Þing-
vallanefndar var þetta mál á dagskrá
nefndarinnar á níu fundum frá 17. des-
ember 2002 til 29. nóvember 2010.h
Fundargerðirnar staðfesta að Þing-
vallanefnd sinnti ekki því lögformlega
hlutverki sínu að að vernda lífríki Þing-
vallavatns og gæta þess að búsvæðum og
hrygningarstöðvum bleikjuafbrigða og
urriðastofna í vatninu yrði ekki raskað.
Nefndin skipti sér eingöngu af þeim
þætti málsins sem sneri að vegarlagn-
ingu innan þjóðgarðsins og kom reyndar
í veg fyrir að vegurinn næði inn í þjóð-
garðinn eins og til stóð á tímabili og að
þungaflutningar og flutningar með olíu
og önnur spilliefni yrðu leyfðir. Þannig
sagði Björn Bjarnason, þá formaður
Þingvallanefndar, í tölvupósti til höf-
undar þessarar greinar 21. mars 2008:
„Ég er ekki málsvari Vegagerðarinnar,
afskiptum Þingvallanefndar af þessu
máli lauk þegar vegurinn var færður út
fyrir þjóðgarðinn.“ Formaðurinn taldi
það greinilega ekki vera hlutverk Þing-
vallanefndar að vernda þjóðgarðinn
gegn spjöllum sem stöfuðu af fram-
kvæmdum utan þjóðgarðsins, þótt aug-
ljóst væri að þær hefðu mikil áhrif innan
þjóðgarðsins. Líklegt er að ef nefndin
hefði tekið afstöðu í samræmi við fyr-
irmæli laga um „að vernda lífríki vatns-
ins“ hefðu mál þróast á annan og betri
veg fyrir náttúru svæðisins.
Athyglisvert er að lesa fundargerð
Þingvallanefndar frá 29. janúar 2004. Á
þann fund koma fulltrúar sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar á fundinn og lýsa
sig reiðubúna að taka höndum saman
við Þingvallanefnd um stækkun þjóð-
garðsins til austurs og norður frá núver-
andi mörkum, sem hljóti að vera umsókn
til heimsminjaskrárnefndar UNESCO
til framdráttar. Formaður segir þá sam-
kvæmt fundargerð að „nefndin sækist
ekki eftir frekara svæði en það [svo] sem er
afmarkað“. Þannig virðist Þingvallanefnd
þegar á árinu 2004 hafa verið búin að gefa
upp á bátinn hugmynd um að fá vatnið og
Þingvelli skráða á heimsminjaskrá sem
náttúruminjar og ekki séð neina þörf á
stækkun þjóðgarðsins.
LÆRDÓMUR
Gjábakkavegur er hluti vegar sem áður
var nefndur Kóngsvegur, og var lengi
stærsta einstaka framkvæmd Íslendinga,
einn elsti vegur landsins á nútímavísu,
upphaflega reiðvegur sem hestvagnar
komust einnig um. Hann var lagður árið
1907 til að auðvelda ferð Friðriks VIII
Danakonungs frá Reykjavík til Þing-
valla og áfram austur að Geysi og Gull-
fossi. Áður var kominn vagnfær vegur frá
Reykjavík til Þingvalla. Kóngsvegur var
aðlagaður landi og náttúru og er enn í dag
vitnisburður um það erfiði og þá útsjónar-
semi sem þurfti að beita við vegagerð
fyrir tíma stórvirkra vinnuvéla (8. mynd).
Þetta var löngu áður en hugtakið mat á
umhverfisáhrifum varð til. Nú á dögum
telja menn veginn sjálfsagðan hluta af
Þingvallasvæðinu og er hann friðlýstur
sem mannvirki eldra en 100 ára (Ólafur
Örn Haraldsson, munnl. uppl. vor 2020).
Lyngdalsheiðarvegur er hins vegar
lagður úr takti við landið og umhverfi
sitt og er áberandi landslagslýti í áður
óröskuðu hrauni. Hann er lagður yfir
einhverja mestu vatnsauðlind landsins og
beinir umferð um helstu náttúruminjar
þjóðarinnar, stuðlar að frekri gegnum-
streymisumferð um viðkvæmt svæði
og þjóðgarð og bætir í þá mengun sem
hugsanlega gæti eytt því einstaka lífríki
sem Þingvallavatn býr yfir. Sýnt var með
haldbærum rökum að til voru aðrir kostir
til að bæta vegasamgöngur á svæðinu.
e Fyrir fundinn skrifaði Pétur ýtarlega greinargerð um málið. „Stage of conservation of Thingvellir national park, Iceland, an area on UNESCO’s
heritage list,“ dagsetta 7. apríl 2008.
f Í bréfinu stendur einnig m.a. „It is urgent, because the Road Authorities are starting the construction work up now. Please give the Icelandic
government your warning as soon as possible … In fact the highway is a threat against the unique biodiversity of the sub-arctic area on the top
of “the Mid-Atlantic Ridge” as well as to a National Park which is on the World heritage list.“
g „... this has the value that it would be the first of the serial conservation of The Mid-Atlandic Ridge because it is the only lake system right on the top.“
h Fundargerðir Þingvallanefndar frá þessum tíma eru varðveittar á skrifstofu Þingvallanefndar, en hafa ekki verið gerðar aðgengilegar á vefnum.
Meðal þeirra verkefna sem heimsminjanefnd Íslands er ætlað í nánustu framtíð er að undir-
búa tilnefningu Þingvallasvæðisins á heimsminjaskrána sem náttúrustaðar, sbr. ákvörðun
ríkisstjórnarinnar 4. desember 2001. Af þeim sökum hefur nefndin endurskoðað afstöðu
sína til spurninga Vegagerðarinnar og þeirra vegastæða sem til umræðu voru. Áhyggjur
nefndarinnar felast fyrst og fremst í því að með lagningu þjóðvegar með 90 km hámarks-
hraða megi búast við stóraukinni umferð í gegnum Þingvallaþjóðgarð umfram það sem
eðlilegt getur talist vegna fjölgunar ferðamanna, sem heimsækja Þingvelli. Með aukinni um-
ferð um þjóðgarðinn getur skapast sú hætta, að Þingvellir verði settir á lista yfir heimsminj-
ar í hættu, m.a. þar sem umferðarþungi og umferðarhraði mun væntanlega stóraukast í
gegnum þjóðgarðinn. Enn fremur eru vísbendingar frá heimsminjaskrifstofu UNESCO um
að með því að beina aukinni umferð mjög nálægt vatninu og í gegnum þjóðgarðinn gætu
möguleikar Íslands á að fá Þingvelli inn á heimsminjaskrána sem náttúruminjar minnkað.
Úr bréfi Heimsminjanefndar Íslands til Vega-
gerðarinnar í febrúar 2007 [leturbr. höf.]: