Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Qupperneq 9
Gissur O. Erlingsson
Ur ruslakistunni
Bemskuminningar frá
Borgarfirði
r
byrjun tuttugustu aldar skildi Borgar-
ijarðarhreppur í Norður-Múlasýslu milli
Utmannasveitar á Héraði og Loð-
mundarfjarðar. Nú, á þessum flóttatímum
frá dreifbýli til þéttbýlis, hefur mannabyggð
lagst niður í Loðmundarfirði og víkunum
milli hans og Borgarijarðar, en refur og
minkur sest þar að búi og nytjar bjargfugl
og annað fiðurfé, auk þess sem ár og lækir
gefa af sér ýmislegt góðgæti í svanga
minka- og rebbamaga. Loðmundarijörður
var lagður undir Borgarijarðarhrepp þegar
svo fættaðist um mannfólk þar að
hreppsnefnd varð ekki fullskipuð, svo
mörkin eru nú við Utmannasveit að norðan,
eða þó öllu heldur vestan, og Seyðisijörð að
sunnan.
Þegar ég leit fyrst dagsins ljós, í
Brúnavík, næstu vík sunnan ijarðarins, á
vorjafndægri 1909, voru í byggð þær víkur
sem til hreppsins teljast að Hvalvík og
Álftavík undanskildum, og hélst svo að
mestu framundir ntiðja öldina. Síðan hafa
íbúarnir verið að smáreitast af þessum
víkum, uns nú ríkir þar kyrrðin ein, aðeins
roftn af tófugaggi og krunki hrafna, og í
eggtíðinni af bjargfuglakliði, rjúpukarraropi
og öðru fuglahjali. Og ekki má gleyma
jarrni sauðkinda í sumarhögum - nema
þegar fjárlaust er vegna niðurskurðar af
völdum gamaveiki, mæðuveiki, riðuveiki
eða annarra hremminga sem tíðum leggjast
á þessa dýrategund. Þá em hreindýr og
tekin að gera sig þar heimakomin á síðustu
árum eða áratugum.
Á fyrstu árum aldarinnar bjuggu í
Brúnavík hjónin Filippus Stefánsson silfur-
smiður og Þórunn Gísladóttir ljósmóðir og
grasakona ásamt sonum sínum þeim
Stefáni, Erlingi og Sigurði, flutt þangað
austur úr landþrengslum og óáran í
Skaftafellssýslum, en Gissur sonur þeirra
hafði er hér var komið sögu lokið námi í
vélsmíði og var fluttur í aðrar sóknir.
Systurnar voru um þetta bil allar giftar og
brottfluttar, Regína búsett á Jökulsá í
Borgarfirði en Geirlaug á Ormstöðum í
Breiðdal. Guðrún giftist Einari Sveini
Þorsteinssyni frá Gilsárvöllum, bróðursyni
Stefaníu ömmu, en hálfsystursyni Jóns afa,
og reistu þau bú á Bakkagerði, en tluttust
þaðan að Vestdalseyri í Seyðisfirði.
Jóhanna, yngsta systirin, giftist norskum
manni, Ole Styff, og bjuggu þau á
Glettinganesi þar til hann andaðist árið
1917, eftir ellefu ára sambúð þeirra hjóna,
firá konu og tveim ungum sonum, Gísla og
Thór. Filippus andaðist í Brúnavík í
ársbyrjun 1909, á sjötugasta aldursári, og
náði því ekki að sjá þennan nýja sonarson
sinn, og hefði raunar ekki lengra líf dugað
til, þar sem hann hafði misst sjónina
nokkrum árum áður.