Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Blaðsíða 35
Skurðaðgerð á Brekku
Þegar litið er til búnaðar sem keyptur var til sjúkraskýlisins virðist hafa verið gert ráð fyrir
því að þar vœru gerðar skurðaðgerðir. Á Héraðsskjalasafni Austfirðinga er varðveitt bréf
sem Guttormur Vigfússon, bóndi og alþingismaður í Geitagerði skrifaði kunningja sínum
Jóni Baldvin Jóhannessyni í Stakkahlíð. I bréfinu segir hann m.a. frá skurðaðgerðum sem
Olafur Lárusson læknir gerði á honum með aðstoð
Péturs Thoroddsen læknis á Norðfirði. Hér á eftir fer
sá hluti bréfsins sem jjallar um veikindi Guttorms.
Bréfið er skrifað í Geitagerði 14. ágúst 1919.
Guttormur var fæddur 1850 og var því 69 ára gamall
þegar aðgerðirnar voru gerðar. Hann lést í desember
Kæri vin.
Ég ætla að láta fyrstu línurnar sem ég rispa eftir að
hafa ekki snert á penna síðan við bamaprófið á
Valþjófsstað 1. og 2. maí í vor flakka til þín. Eins og
þú hefur áður frétt veiktist ég nokkuð snögglega, fyrst
í maí, hafði þó fundið dálítið til undir síðunni af og til
frá því rétt fyrir páskana; en svo varð ég strax ijandi
vondur, hafði helst enga umberingu með köflum nema
að liggja með brennheita bakstra, en það var kannske
ekki mikið að marka þar sem ég hafði aldrei á ævi
minni fundið til áður, nema stöku sinnum ofurlitla timburmenn hér áður fyrr.
Svona lá ég nú heima í rúmar þrjár vikur og var læknir alltaf að koma til mín og skoða
mig, en var þó ekki á því hreina með það, hvort vera mundi krabbi eða önnur meinsemd í
lifrinni. Loks var afráðið að reyna uppskurð, fyrst og fremst til að rannsaka hver djöfullinn
þetta væri og gjöra við ef hægt væri. Var ég þá borinn inn að Brekku og ristur á kviðinn
samstundis af þeim Ólafí1 og Pétri Thoroddsen afNorðfírði. Arangurinn af þessum skurði
var sá að þeir fundu stærðar sull eða sullarmein baka til í lifrinni fast út við þindina en gátu
ekki náð til hans að framan. Varð því að græða skurðinn og gekk það bæði fljótt og vel, því
ég var algróinn af honum eftir hálfan mánuð. Tæpur þrem vikum eftir að ég var skorinn
upp, var gjörður á mér annar holskurðurinn, þurfiti þá að klippa sundur eitthvað af riijum
til að komast að meinsemdinni og gekk það allt ágætlega. Ég var þó fjandi slappur fyrstu
vikuna en síðan hefur mér alltaf farið smábatnandi. Ég er nú búinn að vera heima hálfa
þriðju viku, klæðist á hverjum degi og rölti hér í kring, en líklega verður langt þangað til
ég næ mér til fulls.
1 Olafur Lárusson.
Guttormur Vigfússon í Geitagerði.
33