Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Side 84

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Side 84
Múlaþing „ 17. júní, sunnudagur, logn og sólskin og fórum upp að Kvískerjum skemmtiferð. Hallgrímur, Benjamín, Steini, Einar Kristján og ég einnig, Jóhann með Frosta til að járna hann, fórum austur að vatninu, rerum á bátnum, Einar synti, ég tók tvœr myndir. Komum heim aftur kl. 7 síðdegis. Veitt fram vatni til ki. 2, keyrt fram til kl. 7 á mánudagsmorgun, gekk skipið 12 fet, fariðað sofa“* En eftir skemmtunina tekur alvaran við, vinnan byrjar aftur, veðrið versnar, stormur og sjógangur gera það að verkum að vinna síðustu viku rennur út í sandinn í orðsins fyllstu merkingu: „18. júní, mánudagur, þoka og sulla- regn framan af degi og sveif upp af vestri með storm og sandroki og sjógang, algjört verkfall, eyðilagt viku verk. Keyrt um 4 fet“J En inn á milli koma dagar þar sem allt virðist ganga að óskum, sólin fer að skína, það lygnir og þá birtir yfir öllum og bjartsýnin tekur völdin á ný: „23. júní, laugardagur, sólskin, hœgur vestanvindur, keyrt allan daginn, fram á nótt til kl. 2. Trollarinn byrjaði 2 lengdir sínar í dag, gangur 25 fet. Helgi fór heim og Benjamín með honum “8 Sigurður á Kvískerjum minnist þess að björgunarmennirnir hafi höggvið tré upp í Kvískerjalandi og með því stíflað Kvíána og myndað lón fyrir trollarann. Þorsteinn getur um þetta í dagbók sinni fyrir 10. júlí: „ Valdór sótti skó (skóg) að Kvískerjum á 2 hesta, gengið frá þeim aftan við skip til að fylla upp sjólón “. 8 Það skiptast á skin og skúrir, stundum er ekki hægt að vinna vegna hita og suma daga ekki hægt að athafna sig vegna, roks, flóða og stórstrauma. Aftur og aftur gera máttarvöldin margra klukkutímaverk að engu eins og sjá má í dagbókarfærslu fyrir þann 14. júlí: „...stórflóð og stórstraumur, braut niður búkka undir Dúnkraft um nóttina og eyðilagði dagsverk“. 8 Þröngt er orðið í búi bæði um borð í togaranum og einnig í sveitinni, allur sykur, mjöl og hveiti er uppurið. Beðið er eftir mótorbátnum Skaftfellingi sem færir björg í bú. Björn bóndi í Kvískerjum færir björg- unarmönnum birgðir af því sem vantar. Nú er komið svo að áliti björgunar- manna, að aðgerðir séu það langt komnar, að það fari að styttast í að „trollarinn“ verði settur á flot. Sent er eftir mönnum um alla sveit til hjálpar. Og það tjölgar um borð í Clyne Castle. En veðurguðimir halda áfram að setja strik í reikninginn dag eftir dag og breyta dæminu: „19. júlí, fimmtudagur, sofið til kl. 9, regn og skúrir. Komu tveir menn til okkar í vinnu, byrjað kl. 10, höfðum 10 aðkomu- menn, hreinsaður sandur frá, sliskja byrjuð að keyra, hljóp hart á stað, slitnaði 2-var vír komst Trollarinn 25 fet, stoppaði algjörl. hætt kl. 6 e.m. fóru menn heim til sín, gerði stórsjó og braut upp sandkassa, hélt vöku fyrir fólki við að bjarga trjám, ruggaði mikið til klukkan 11 þá að sofa“. „20. júlí, föstudagur, suðvestan rok og brim, ekkert unnið. Valdór fór út í sveit í liðsbón. Eg og Benjamín fórum í skemmtigöngu uppá Kvíárjökul. Eg stóð vakt um nóttina “. „ Unnið erflesta þá daga sem hœgt er en sunnudagarnir eru samt alltaf frídagar og sitt hvað er þá gert til dœgradvalar, s.s.fara í kirkju, skoða umhverfið, landslagið og heimsœkja fólkið á bæjunum í kring. Og nú er svo komið að því að dagsetning fyrir úrslita atlöguna er ákveðinn “. „25. júlí, miðvikudagur, sama veður, nema úrkoma, á fætur kl. 4 1/2 . Klárað að setja undir og smyrja sliskjur. Reif upp tré um kvöldið á flóði, lagt undir aftur á fjöru aðsofakl. 12“ J 82
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.