Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Blaðsíða 74
Múlaþing
Jóhann Hansson. Ljósmynd: Eyjólfur Jónsson.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
á háflóði og þegar fjaraði undan togaranum
gátu skipbrotsmennirnir þrettán, gengið
þurrum fótum á land eftir sandrifí.
I bókaflokknum Þrautgóðir á
raunastund um árið 1919 er sagt frá þessu
strandi og er þess þar getið að Öræfíngar
hafi komið á vettvang og verið tilbúnir að
aðstoða mennina sem voru fluttir til bæja.
Þegar sýnt var að togaranum yrði ekki
bjargað voru skipbrotsmennirnir fyrst fluttir
til Hornafjarðar, síðan sjóleiðis til
Seyðisíjarðar en þaðan hélt hver til síns
heima. Skipstjóri Clyne Castle mun hafa
talið vonlaust að bjarga skipinu. I
Morgunblaðinu þann 9.9.1919 er sagt frá
þessu strandi og þar kemur fram að reynt
var að bjarga togaranum. Þar segir: „tilraun
var gerð, af björgunarskipinu Geir að ná
hinu strandaða skipi út en heppnaðist
eigi“9
Ari Hálfdánarson frá Efra-Bæ á
Fagurhólsmýri hélt dagbók í tengslum við
veðurathugunarstöð á Ingólfshöfða og
skrifaði smávegis út á spássíur í þeirri bók.
Sonur Ara, Helgi, var einn af þeim sem
aðstoðuðu við tilraunina að koma Clyne
Castle á flot.
Ari minnist á strandið í dagbók sinni og
getur einnig um tilraunir björgunarskipsins
Geirs við að koma „ trollaranum “ á flot. í
dagbókinni kemur einnig fram að Hinrik
læknir hafí skoðað skipbrotsmennina 21.
apríl og að öllum líkindum úrskurðað þá
ferðafæra því í framhaldi af því skráir Ari
að þeir hafí verið fluttir austur en ekki allir
í einu „25. apríl, 7 strandmenn fluttir
austur" og aftur skrifar hann þann „2. maí,
6 strandmenn fluttir austur á Höfn frá
Kvískerjum 10
Þann 5. maí minnist Ari á í dagbók sinni
að Jóhann Hansson hafí komið á strandstað.
Jóhanni virðist hafa litist svo á aðstæður og
einnig á Clyne Castle að þetta verk væri
þess vert að takast á við og hefúr séð í þessu
verkefni hagnaðarvon.
I framhaldi af þessari ferð, kaupa þeir
Jóhann Hansson, sem rak vélsmiðju á
Seyðisfírði og Valdór Bóasson, kaupmaður
og útgerðarmaður frá Hrúteyri við
Reyðarfjörð, togarann á strandstað og töldu
þeir sig þar eiga auðvelt verk fyrir höndum
við að koma honum á flot.
Þeir létu verkin tala
Jóhann var kunnur vélsmíðameistari á sinni
tíð og stofnaði árið 1906 vélsmiðju á
Seyðisfirði. Hann smíðaði margar
vatnstúrbínur fyrir rafstöðvar og einnig
byggði hann dráttarbraut fyrir allt að 100
smálesta skip.
Jóhann Hansson (21.6.1884-14.8.1956)
fæddist á Djúpavogi, sonur þeirra hjóna,
Hans Lúðvíkssonar á Djúpavogi og
Þórunnar Jónsdóttur frá Hærukollsnesi í
Álftafírði.
72