Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 61
Sigurður Kristinsson
Hólar í Fjarðardal í
Mjóafírði
Gróðri og friðsæld Fjarðardals í
Mjóafirði er viðbrugðið og þama er
í rauninni einstæð náttúruperla.
Dalurinn er þröngur og fjöllin brött, svo að
ekki sér til sólar hálft árið í dalbotninum.
Því er bæði skuggasælt og skjólsælt þar.
Virðist það hlúa að gróðursældinni, svo að
jurtagróður verður hávaxinn, margar
tegundir blóma og fáeinar sjaldséðar.
Einkum er mikið blómskrúð í Hólabotni
neðarlega í norðurhlíð. Fjöllin eru 1000 -
1100 m há báðum megin, mun aðkrepptari
og brattari að sunnanverðu, jarðvegur er þar
grynnri og grös strjálli en þó er beitiland þar
mjög gott meðan til næst fyrir snjóum.
Skógarkjarr er allt að norðanverðu en hefur
stundum orðið fyrir hnekki vegna
skógarmaðks. Það vex ört nú en er orðið allt
of þétt. Mikið vex af berjum í dalnum.
Frá landnámi var byggð í Firði og
eflaust hefur fljótlega verið byggt í
Fjarðarkoti (Innra - Firði). Hvergi var búið
innar í dalnum fyrr en árið 1851 að reist var
úr auðn í Hólum og búið þar til 1875.
Bæjarstæðið var snoturt og túnið grasgefíð
en kargaþýft. Fjárhúsin voru á barði innan
við Hólalæk og þar var einnig túnblettur.
Þessir túnblettir vom nýttir til slægna frá
Fjarðarbýlum eftir að Hólar fóm í eyði
1875.
Árið 1905 var byggt upp í Völvuholti
nokkru utar og búið þar til 1925. Að þessum
tveimur bæjum var lengst sjávargata í
Mjóafírði, einkum að Hólum.
Tölur í svigum eru númer fólksins í
Ættum Austfirðinga.
Hólar 1851 -1861
Vorið 1851 byggðu þar upp hjónin Þorkell
(10826) Þorsteinsson og Björg (12451)
Vilhjálmsdóttir. Ekki er nú vitað hvort þar
voru fyrir einhver ummerki mannvista en
nefndur hefur verið Hólastekkur. í
aðalmanntali 1. október 1850 eru þau skráð
í Brúnavík í Borgarfjarðarhreppi. Hann er
talinn vinnumaður. En þetta ár eru þau samt
á skrá um innkomna til Mjóafjarðar og talin
hafa flust að Firði. Hafa þau flust þangað
eftir manntal um haustið, verið um veturinn
í Firði og undirbúið byggingu í Hólum.
Mjög er óvenjulegt að búferli verði til
sveita á þeim árstíma. Með þeim kom
sonurinn Halldór, 5 ára. Móðir konu, Björg
Magnúsdóttir, var hjá þeim öll árin í
Hólum. Einnig kom með þeim sonur hennar
af síðara hjónabandi, Guðmundur (7246)
Magnússon. Hann fór til Norðljarðar eftir
tvö ár en bjó síðar lengi í Fannardal og kom
upp mörgum bömum.
59