Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Qupperneq 135

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Qupperneq 135
Stafkirkja og rauðviðarskáli á Valþjófsstað kringlunni eru fjórir sams konar drekar, fléttaðir saman. Bítur hver þeirra í sporð sér, en klærnar tengjast í miðju. Þar er líkt og óskapnaðurinn sé bundinn í fjötra. Hin guðlega regla nær yfirhöndinni, enda telja sumir fræðimenn að „hinn ríki konungur“ sé enginn annar en frelsarinn Jesús Kristur. Ellen Mageroy segir útskurð hurðarinnar „eiga sér helst hliðstæður í dyraumbúnaði á ákveðnum hópi af norskum stafkirkjum“.22 Hurðin er fyrst nefnd í vísitasíu Brynjólfs biskups 1641, sem fyrr getur, og er þá innri hurð fyrir stafkirkjunni. Þegar hún var rifín um 1745 og torfkirkja byggð í hennar stað, halda menn að hurðin hafi verið stytt um þriðjung, og einn myndflötur tekinn neðan af henni; auk þess var hún gerð að útihurð og fór þá brátt að hrörna. Arið 1829 var Eyjólfur Isfeldt fenginn til að gera við hurðina. Er sagt að hann hafi „höggvið upp mikið af því bíldhöggvara- verki sem á henni er“ og málað hana. Þetta verður að skilja svo að hann hafi skýrt upp myndskurðinn. Auk þess bætti hann stykkjum í hurðina.23 Stefán Arnason prófastur á Valþjófsstað (1836-1858) ritaði nákvæma lýsingu á hurðinni, dagsetta 12. jan. 1850, sem birt er í riti Bæksted um íslenskar rúnaristur 1942. Þar segir í lokin: Sögn manna er, að fyrrum hafí 3 hringar verið á hurðinni, og hún þá miklu breiðari en nú, sem einnig lætur að líkindum að verið hafi, sé hún frá skála þeim enum mikla, sem var hér á Valþjófsstað, sem ekki er heldur ólíklegt, vegna þess að lokrekkju dyraíjalirnar voru allar með áþekku skurðsmíði þegar eg kom hingað 1812, en sem síðan eru glataðar.24 Svo virðist sem þessi umsögn Stefáns hafi komið þeim langlífa orðrómi á flot, að hurðin hefði upphaflega verið fyrir skál- anum, sem um er fjallað í næsta kafla. Árið 1851 (eða 1852) var Valþjófs- staðahurðin afhent Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn, í skiptum fyrir nýja hurð og tvo ,álnarstjaka‘, sem enn prýða altari kirkjunnar, en munu ekki vera til margra fiska metnir. Þar var málningin skröpuð af henni og aftur gert við hana af færustu forvörðum safnsins og skipaði hún heiðurssess í safninu allt til þess er hún var afhent íslenska ríkinu í tilefni Alþingis- hátíðar 1930, ásamt fleiri gripum. Þá var henni komið fyrir í geymslu í kjallara Landsbókasafnsins, en Þjóðminjasafnið var þá til húsa á efstu hæðinni. Þegar Þjóðminjasafnið flutti í núverandi byggingu við Suðurgötu um 1950 fékk hurðin aftur sinn virðingarsess. Halldór Sigurðsson á Miðhúsum smíðaði og skar út nákvæma eftirlíkingu, sem gefín var nýrri kirkju á Valþjófsstað 1966, og er þar nú innri hurð.25 Árið 1939 setti Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður fram þá skoðun sína, að Randalín Filipusdóttir, ekkja Odds Þórarinssonar á Valþjófsstað hafí skorið út Valþjófsstaðahurðina eftir víg Odds 1255. Þessi tilgáta tengist hugmyndum hans um Þorvarð Þórarinsson sem höfund Njálu. Telur hann að Þorvarður hafi notað kunnugar persónur úr samtímanum í söguna, eins og skáldsagnahöfundar gera nú, og bendir á líkingu Randalínar við Hildigunni Starkaðardóttur í Njálu, en um hana segir sagan: „Hún var svo hög, að fáar konur voru þær er hagari voru“. Auk þess telur Barði að Oddaverjar hafí rækt hina evrópsku riddarasöguhefð meira en aðrar íslenskar ættir, og Randalín var afkomandi Magnúsar konungs berfætts, sem hafði ljón í skjaldarmerki sínu.26 Ef þessi tilgáta errétt er hurðin nokkru yngri en almennt er talið. 133
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.