Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Síða 22

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Síða 22
Múlaþing Jafnt bil var milli hnoðgatanna á ljá- blöðunum, og lengd þeirra miðuð við gatafjöldann. Stystu ljáir voru að mig minnir 9 gata, lengstir 11 eða 12 gata. Stystu ljáirnir voru gjarnan ætlaðir unglingum og kvenfólki, eða notaðir þar sem þýft var eða torslegið að öðru leyti, þeir lengri kröftugri sláttumönnum eða þar sem fyrirstaða var minni, svo sem á sléttum engjum, blám eða stararengjum, en 10-11 gata algengastir til almennra nota, og átti vitanlega hver maður sitt sérstaka orf og ljá sem hann notaði að jafnaði. Þótt við tveir elstu bræðumir værum lágir í loftinu sumarið 1917 og okkar síðasta á Gilsárvöllum, Nonni 9 ára og ég 8, þá vom okkur þó ætluð störf svo sem þá tíðkaðist. Faðir okkar smíðaði amboð við hæfí, orf og hrífur, stytti léni úr 9 í 7 gata og smíðaði ljábakkana í samræmi við það. Vomm við svo sendir á skák útaf fyrir okkur neðan túns og þar hjökkuðum við óáreittir og án þess að vera vinnandi fólki til trafala. Einhver metnaður hefur verið í okkur strákum, því síðar gortaði amma af okkur við gesti og gangandi: „Drengimir slógu þrjá bagga yfir daginn, og þetta líka rígaband“. Um ættir Stefaníu og Jóns Stefanía amma mín fæddist á Gilsárvöllum 30. september 1847, dóttir Ólafs Stefáns- sonar bónda þar og Soffíu Sigurðardóttur frá Skógum í Öxarfirði, elst þriggja barna þeirra hjóna, en fyrir áttu þau hvort í sínu lagi böm úr fyrri hjónaböndum, hún sjö en hann ijögur. Amma dó í Höfn 7. febrúar 1936. Faðir Ólafs á Gilsárvöllum var Stefán Ólafsson hreppstjóri, sem sögur herma að þurft hafi að gegna þeirri þungu embættisskyldu að fullnægja hýðingardómi yfir alnafna sínum í Litluvík, Stefáni sterka Ólafssyni og konu hans. Þau höfðu unnið sér það til dómsáfellis að leggja launbam dómþola með vinnukonu á bænum í sæng hjá húsmóðurinni og telja sitt skilgetið hjónabandsbarn, enda barnlaus fyrir. Um þetta embættisverk var kveðið: Stefán meður styrkri hönd, stillis trúi þjóninn, lét í vetur leika vönd um Litluvíkurhjónin. Soffía var hálfsystir Elísabetar Sigurðar- dóttur, samfeðra, móður séra Sigurðar Gunnarssonar, síðast á Hallormsstað. Móðir Soffíu var Rannveig Gunnarsdóttir (Skíða Gunnars), föðursystir séra Sigurðar. Soffía fluttist árið 1844 með honum ekkja að Desjarmýri í Borgarfirði er hann tók þar við kjóli og kalli. Þangað komin kynntist hún Ólafi bónda á Gilsárvöllum, sem þá var orðinn ekkjumaður, og giftist honum. Saman eignuðust þau þrjú böm, Stefaníu, Þorstein og Guðnýju. Kona Stefáns hreppstjóra var Steinunn Þórðardóttir, Gíslasonar og Eygerðar Jóns- dóttur pamfíls á Finnsstöðum í Eiðaþinghá. Þau Finnsstaðahjón. Þórður og Eygerður vom miklar dugnaðarmanneskjur, Þórður nokkuð drykkfelldur og ekki við allra skap. Sagt er að fyrsti búskaparvetur þeirra hafi verið harður, og Þórður orðið heylaus á útmánuðum. Þá á hann að hafa sagt: „Þetta hlýst af að eyða tíma frá heyskapnum í að kjá framaní Eygerði“. Ekki komust þau oftar í þrot með hey, þó að hann hafi haldið áfram að „kjá framan í Eygerði“ ef að líkum lætur. Þegar Ebenezer Henderson - Biblíu- Henderson - var á ferð um landið árin 1814-15 tjaldaði hann að áliðnum degi seint 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.