Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Síða 85
Bjartar vonir og vonbrigði
#
Clyne Castle að grafast í sandinn. Myndin er líklega tekin árið
1923 þegar iokaatrennan var gerð tii að bjarga skipinu. Eigandi
myndar: Olqfía Herbog Jóhannsdóttir
Forsjónin lofuð
En ekki fór sem skyldi því um
nóttina skall á austan stormur
og hætt var við atlöguna,
mennirnir sendir heim og
beðið eftir öðru færi. Björgun-
araðgerðir höfðu nú staðið yfir
í rúma tvo mánuði og má
vænta þess að það hafi verið
farið að gæta óþolinmæði í
liðinu. Eins má ætla að það
hafí ekki verið átakalaust að
eyða tímanum við þessa
kostnaðarsömu aðgerð og sjá
ekki árangur erfiðisins, íjár-
hagurinn farinn að versna og
engar tekjur á meðan unnið er
við Clyne Castle. En samt er enn reynt að
gera sér dagamun og halda við hefðum.
Þorsteinn á afmæli þann 29. júlí og getur
hann þess í dagbók sinni að það hafi verið
drukkið afmæliskaffí sér til heiðurs og
brennivín með.
Alltaf er reynt að halda í bjartsýnina og
treyst á árangur þessarar miklu vinnu. Því
er trúað að nú sé forsjónin þessum að-
gerðum hliðholl og næst takist að bjarga
skipinu.
Komið er fram í ágúst og allir eru
sammála að heppnin hafi verið þeim
hliðholl síðustu viku. Nú er annaðhvort að
hrökkva eða stökkva: „1. ágúst, miðviku-
dagur, heiður undir vestan, logn, lítið um
sjó, á fætur kl. 9, þá að rífa undan
miðbúkka á bakborð, ekki klárað fyrirflóð,
byrjað að taka vatn á gufuketilinn, gengu
tvœr pumpur, sofið og hvílt sigfrá kl. 4 e.m.
til kl. 12 um nóttina, þá á fœtur, klárað að
rífa undan búkkan, unnið til kl. 5 og nú má
heita að nú sé allt komið undan. Reyndar er
ótekinn frambúkki en hann er jljóttekinn.
Við tókum á dekk dúnkraftana og járnbita
svo ekki verða þeir notaðir meir, hvernig
sem allt fer nú er að láta annað hvort
hrökkva eða stökkva í næsta stór straumi.
Við höfum verið dæmalaust heppnir með
veður og sjó þessa viku að við höfum fulla
ástæðu að lofa forsjónina fyrir það. Það er
trú mín að lánið sé með íþetta skiptið, hefði
brimað sjór þá hefðum við verið illa
staddir, skipið í sjó reið miðkjala á trjám,
ekki hægt að komast í land, vatnslausir og
tvísýnt að halda skipinu í réttu horfi mátti
eins búast við að þessar hefðu ekki
haldið... “.8
Þorsteinn og allir björgunarmennimir
eru á því að næsta tilraun fari betur og nú
takist að koma Clyne Castle á sjó út. Aftur
er safnað sarnan liði til björgunaraðgerða,
menn og hestar, fengnir úr sveitinni og
næsta nágrenni, nú skal tjaldað því sem
tiltækt er.
Valdór fer inn um sveitina til að útvega
hesta en á meðan fara Þorsteinn og félagi
hans á skúmsungaveiðar og höfðu upp úr
því 13 stykki. Nú virðist forsjónin hafa
öðrum verkefnum að sinna og vera búin að
yfirgefa þá félaga, því að það eykur brimið
og skipið hallar. Björgunarmennirnir fara á
83