Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 107

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 107
Jökuldæla Hákonarstöðum“, sá sami og séra Jón Ingjaldsson vitnaði til, en faðir Péturs þess, sem séra Sigurður skrifaði Jökuldœlu eftir. 7) Ungar sagnir um handrit Jökuldœlu. Hér að framan í 4) var vitnað í greinargerð Guðna Jónssonar um Jökuldœlu fyrir útgáfu hennar í íslendinga sögum. Eins og þar sagði „eru enn ýmsar ágizkanir ... hvað af henni hafi orðið“. Einnig var þar nefnt, að þá hefðu verið gerðar árangurslausar tilraunir „til þess að komast á feril hennar“. Ekki gerði Guðni neina grein gerð fyrir þessum ágiskunum, en í greininni í Sólhvarfasumbli stendur: „en vonandi þekkir einhver sem þetta les til þeirra og birtir lærða ritsmíð um sagnir um þessa sögu“. Enginn hefur enn svo mér sé kunnugt orðið við þessum tilmælum og þess vegna er hér tínt saman það sem fundist hefur. Margt af þessu hefur Páll Pálsson á Aðalbóli bent mér á. Eflaust er hægt að bæta hér um betur, en þykir vonandi betra en ekki. Guðmundur Jónsson. I grein sem Guð- mundur skrifaði í vestur-íslenska tímaritið Sögu 1927 er frásögn um Jökuldælu. Fyrst nefndi hann að bókin hefði verið týnd þegar séra Sigurður Gunnarsson skrifaði fyrr- nefnda grein sína, síðan segir: Þó mun hafa verið til brot úr henni lengur, þótt fáir vissu, og er þessi sögn því til sönnunar. Sigurður Sigurðsson frá Fögruhlíð sagði mér það siðasta, sem eg hef frétt af bók þessari. Sigurður var vel greindur maður og gætinn, og manna færastur að lesa settletur og gömul handrit. Hann kvaðst hafa farið upp að Amórsstöðum á Jökuldal nálægt 1880, í kynnisför til bóndans þar, Jóns Kjartanssonar, sem áður hafði verið nágranni hans. Þegar hann kom þangað, var Jón bóndi ekki heima. Sigurður dvaldi þar tvær nætur, en varð að snúa heim á leið áður en Jón kom heim. Hann kvaðst hafa farið að leita þar í bókarusli sér til skemtunar, en þar rakst hann á skinnbókarræfil, mig minnir að eins tvö blöð. Þau voru svo máð, að þau vom lítt læsileg; þó komst hann að þeirri niðurstöðu, að þau væm úr Jökuldælu. Ekki kvaðst hann hafa getað náð samhengi úr efni þeirra, því þetta var í skammdegi og dauf birta. Þó kvaðst hann hyggja, að hann hefði getað lesið þau að mestu leyti við góða dagsbirtu. Enginn þar á bæ sagði hann að hefði vitað, hvað á þessum blöðum stóð; þau höfðu þvælst þar lengi í öðru bókamsli. Næsta vetur heimsótti Sigurður Jón bónda, og spurði eftir blöðunum, en þau vom þá glötuð.16 Samkvæmt nafnaskrá við Þjóðsögur Sigfúsar var Sigurður Sigurðsson í Fögru- hlíð uppi á árunum 1830-1907. Þessi frásögn er fremur ólíkleg, m. a. af því að allar líkur benda til að Jökuldœla hafi verið svo ung, að hún hafí aldrei verið til á skinni og haft þetta verið skinnblöð, mætti giska á að þau hafi getað verið gömul jarðabréf. Einnig er frásögnin nokkuð óljós. Sigfús Sigfússon. í seinni útgáfunni á Þjóðsögum Sigfúsar er eftirfarandi frásögn með fyrirsögninni: „Skjöldólfshaugur“ um handrit Jökuldœlu og endursögn sem á að vera komin úr því: Gunnar í Húsavík austur, sonur Jóns Benjamínssonar er lengi bjó að Háreksstöðum í Jökuldalsheiðinni, segir að faðir sinn hafi átt Jökuldælu, skrifaða setthönd og fljótaskrift af ísaki bróður hans, í bók á stærð við Jónspostillu. Vom þar í riddarasögur með og vísur eftir Isak og ýmislegt fleira. Þessa bók lét Anna [Jónsdóttir] síðari kona Jóns börn þeirra rífa niður í hugsunarleysi. Gunnar segir að 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.