Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Qupperneq 104
Múlaþing
Jóhanna Jóhannesdóttir og Jóhann Matthíasson Long með synina. Sitjandi
frá vinstri: Karl Long, Jóhanna og Hróðnýr. Standandi: Einar Páll Long og
Jóhannes Long. Maðurinn lengst til hægri er óþekktur. Eigandi myndar:
Ljósmyndasafn Austurlands.
faðir hennar. Mæðgurnar fluttust austur á
Hérað frá Háreksstöðum 1860 og dvöldust
þar. Jóhanna var vinnukona í Fjallsseli 1875
en fluttist að Miðhúsum í Eiðaþinghá 1877.
Hún giftist Jóhanni Matthíassyni Long. Þau
bjuggu á Seyðisfirði og áttu þrjá sonu, sem
hétu Einar, Karl og Hróðnýr. Síðast er hún
skráð húsfreyja í Vestmannaeyjum og lést
þar 1947. En Hróðný virðist hafa átt erfiða
ellidaga. Hún fluttist í Fjallssel „af umferð“
1863, var þar til 1880 en léstáKrossi 1882.
Virðast ævikjör hennar hafa verið heldur
dapurleg eftir að hún fór úr foreldrahúsum
laust eftir 1830, vistferli með fárra ára dvöl í
hverjum stað og jafnvel umferð næst síðasta
áratuginn sem hún lifði.
4. Kristín eldri f. í Klausturseli 18. sept.
1806. Dó 18. okt. s. ár.
5. Kristín yngri (1605) Jóhannesdóttir
f. í Klausturseli 13. okt. 1807. Hróðný og
Kristín fermdust saman 1821. Var með for-
eldrunum í búferlum þeirra og svo lengst
í Fjallsseli. Varð síðari kona Bessa (1119)
Bessasonar á Birnufelli, voru þar fyrstu árin
en fluttust svo að Giljum á Jökuldal árið 1845.
Bessi fæddist árið 1794 á
Ormarsstöðum en lést á
Giljum 27. jan. 1868. Áttu
tvo sonu, Benedikt, sem
varð úti 1872 og Þorkel er
kvæntist Þorbjörgu (7274)
frá Hafrafelli Sveinsdóttur.
Þau fluttust til Ameríku 1876
frá Giljum með fimm böm,
árið eftir Dyngjufjallagosið
eins og margir fleiri. Kristín
var þá orðin ekkja og fór
með þeim „vestur í bláinn“
og fjarlægðina. Kaus það
frekar en að vera ein eftir á
Islandi. Átti þó fjöld frænda
á Héraði og Jökuldal. Hefur
ekki viljað vera upp á þau
komin í ellinni.
6. Guðrún (1606) Jóhannesdóttir f. 2.
janúar 1809 í Klausturseli. Fluttist ásamt fjöl-
skyldu sinni að Hrafnkelsstöðum 1814, erþar
skráð tvö næstu ár en hverfur svo úr mann-
tölum fram til 1835 en þá er hún vinnukona
í Möðrudal. Fluttist það ár að Hofströnd í
Borgarfirði, fyrst skráð vinnukona en giftist
svo Halldóri (10871) Benediktssyni og bjuggu
þau þar. Hann lést af „sjókulda“ 1858. Þau
vom bamlaus en tóku til fósturs Önnu Kristínu
Jónsdóttur frá Geitavík, systurdóttur Guð-
rúnar. Guðrún hætti búskap eftir lát manns
síns og gerðist próventukona hjá sr. Sigurði
Gunnarssyni á Desjarmýri, fluttist með honum
að Hallormsstað 1862 og lést þar 1867. Anna
Kristín barst inn í Fljótsdal. Guðrún hefur
líklega farið sjö ára í fóstur að Möðrudal.
Bóndinn þar var Jón Jónsson, hálfbróðir
Jóhannesar, kvæntur Aðalbjörgu Ámadóttur
frá Bustarfelli. Synir þeirra vom hinir nafn-
toguðu Möðmdalsbræður: Jón, Ámi, Sigurður
og Metúsalem. Guðrún var því fóstursystir
þeirra.
7. Þorkell yngri (1607) Jóhannesson f. í
Klausturseli 9. október 1810. Bjó í Fjallsseli
102