Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Page 130

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Page 130
Múlaþing Vörðurnar á heiðinni em afýmsum gerðum og í misjöfnu ástandi. Hér má sjá eitt skemmtilegt og tignarlegt til- brigði. Horft er til austurs. Ljósmynd: Þóra Pétursdóttir. laganna séu svo afdráttarlaus. Árin líða og minjar sem féllu ekki að skilgreiningunni áður gera gera það nú, auk þess sem oft getur verið erfitt að skilgreina aldur minja yfir höfuð. Þegar um vafaatriði er að ræða, em minjamar þó iðulega látnar njóta vafans og frekar skráðar en ekki. Auk aldursreglunnar má í núgildandi Þjóðminjalögum (2001 nr. 107) finna frekari skýringu á því hvers konar mannvirki, hlutir eða fyrirbæri geti fallið í flokk fornleifa, og er sérstaklega áhugavert hve víðfeðm sú skil- greining er: 9. gr. Til fomleifa teljast hvers kyns leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða mannaverk eru á, svo sem: a. búsetulandslag, byggðaleifar, bæjarstæði og bæjarleifar ásamt tilheyrandi mannvirkjum og öskuhaugum, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggða- leifar í hellum og skútum; b. vinnustaðir þar sem aflað var fanga, svo sem leifar af seljum, verstöðvum, bólum, mógröfúm, kolagröfum og rauðablæstri; c. gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita; d. gamlir vegir, stíflur, brýr, vatnsvöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra; e. virki og skansar og önnur vamarmannvirki; f. gamlir þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð; g. áletranir, myndir eða önnur verksummerki af manna völdum í hellum eða skútum, á klettum, klöppum eða jarðföstum steinum og minningar- mörk í kirkjugörðum; h. haugar, dysjar og aðrir greftmnarstaðir úr heiðnum eða kristnum sið; i. skipsflök eða hlutar úr þeim. Af þessari upptalningu má því sjá að hún nær ekki eingöngu til staðbundinna minja eða mannvirkja heldur geta lögin tekið til búsetu- eða menningarlandslags í heild. Og, ekki aðeins til sýnilegra minja heldur einnig horfínna, sem og þeirra sem ekki sjást í hefð- bundnum skilningi - þ.e. þeirra sem tengjast þjóðtrú og þjóðsögum. Hægt er að flokka fomleifaskráningu gróf- lega í tvo flokka: framkvæmdaskráningar og rannsóknarskráningar. Rannsóknarskráningar em gerðar vegna áhuga heimamanna, eða vegna sérstakra rannsóknarverkefna og em yfirleitt unnar fyrir sérstaklega veitta styrki. Framkvæmdaskráningar em hins vegar gerðar í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir og þá oft sem hluti af heildrænu umhverfismati, en slíkt mat er lögbundið í Lögum um mat á umhverfisáhrifum frá árinu 2000. Þar kemur skýrt fram að áður en til framkvæmda komi 128
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.