Saga


Saga - 2014, Side 7

Saga - 2014, Side 7
F o R M Á L I R I T S T J Ó R A Ljósmyndin á forsíðu Sögu sýnir utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar steypta í vax. Lífrænt efni, seigfljótandi og umbreytanlegt, og þeim eiginleikum gætt að sá sem það meðhöndlar af færni getur líkt eftir holdi klæddum manns- líkama og framkallað sjónblekkingu sem varir þar til hið ókennilega augna- blik rennur upp og stillan og þögnin leiða áhorfandann í sannleika um að myndin er dauður hlutur, eiginlega sjúklegur í raunveruleika sínum. Í þeirri upplifun liggur aðdráttarafl vaxmynda. Ljósmynd af vaxmynd getur að einhverju leyti þurrkað út þá skynjun og þessi tengsl hennar við sjúkleika og dauða. Með því að frysta augnablik sem þegar er frosið lifnar viðfangsefnið við, og þögnin og stillan verður hluti af hinu tímalausa tómi ljósmyndarinnar þar sem ekki er gert ráð fyrir andardrætti, hreyfingu eða augnagoti. Líkt og aðrar vaxmyndir vekur ljós- myndin af utanþingsstjórninni úr vaxi þá skuggalegu tilfinningu sem fylgir því að finnast hið dauða vera á lífi. Hin lifandi fyrirmynd vaxins sem varðveitt er á ljósmynd frá 16. des - ember 1942, og sjá má á bakkápu tímaritsins, getur á hinn bóginn vakið ekki síður óþægilega tilfinningu, þá tilfinningu að hið lifandi kunni að vera dautt. Að ráðherrar utanþingsstjórnarinnar, líkt og annarra ríkisstjórna Íslands, séu ekki af holdi og blóði heldur staðlaðar eftirmyndir hver annars, steyptir í form og njörvaðir niður í fyrirfram mótuð hlutverk íslenskrar stjórnmálasögu sem fjallar fyrst og fremst um formleg völd karlmanna í tím- ans rás, stjórnmálasögu sem lætur leikendur sína sífellt leika sama leikinn ár eftir ár. Alltaf sitjandi við þetta „sama“ borð, eins og lesa má um í fyrstu grein þessa heftis, „Nýr söguþráður. Hugleiðingar um endurritun íslenskrar stjórnmálasögu“. Greinin er eftir Ragnheiði kristjánsdóttur og fjallar um þá hefð sagnaritunar sem skapast hefur um þróun íslenskra stjórnmála á 20. öld og leiðirnar til þess að brjótast út úr þeirri hefð, m.a. með því að horfa á stjórnmál í víðari skilningi, t.d. í samhengi stjórnmálaskrifa og almennrar þátttöku innan stjórnmálaflokka. Þannig koma til sögunnar fleiri persónur, þeirra á meðal konur. Niðurstaðan er margbreyttari stjórnmálasaga. og margbreytileikinn hlýtur að teljast einn mikilvægasti þátturinn í frjórri sýn okkar á fortíðina. en til þess að geta framkallað nýjar myndir og óvæntar þarf að lesa nýjar heimildir og lesa eldri heimildir á annan hátt. við getum í sjálfu sér sagt að sagnfræði fjalli um fortíðina, en óhjákvæmilega verðum við stundum að sætta okkur við að fræðin fjalli fyrst og fremst um það sem varðveist hefur um fortíðina. Jafnvel þótt viðfangsefnið sjálft sé það sem er handan heimildanna eða það sem þeim er ætlað að leiða í ljós. Mat heimilda Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.