Saga - 2014, Page 44
Wikileaks-skjölin veikja því þá kenningu, sem oft hefur verið
fleygt, að Davíð oddsson hafi misskilið og ýkt skilaboð frá viktori
Tatarintsvev, sendiherra Rússlands á Íslandi, og eyðilagt möguleika
á láni með því að fjalla um hann í fjölmiðlum.38 Í það minnsta sýna
skjölin ekki að þau hafi spillt viðræðum við rússneska embættis-
menn. Tólf dögum síðar, eftir fundalotu í Moskvu, var Sturla Páls -
son enn á því að lánið væri nánast fast í hendi og aðeins væri eftir
að ganga frá formsatriðum.39 Skjölin styðja frekar þá ályktun að
íslensk stjórnvöld hafi öðrum þræði reynt að nota „Rússalánið“ til
þess að vekja Bandaríkjamenn af værum blundi og koma Íslending -
um til bjargar, því að annars myndu Rússar seilast til sífellt meiri
áhrifa hér á norðurslóðum.40 Það hefði þá verið gamalkunnugt
bragð úr heimi kalda stríðsins.41 Af skjölunum má ráða að þreifingar
milli íslenskra og rússneskra valdhafa vöktu vissulega ugg í banda-
ríska sendiráðinu í Reykjavík. ekki vitum við hins vegar hvort sömu
sögu var að segja í Washington — um það geta Wikileaks-skjölin
ekki vitnað. Heldur virðist það þó ólíklegt. Frá sendiráði Bandaríkj -
anna í Moskvu bárust óðara vísbendingar um að ekki vildu allir í
stjórnkerfinu þar veita Íslandi drjúgt lán.42 Auk þess sljóvguðu
íslenskir embættismenn vopnið með því að viðurkenna að þegar til
kastanna kæmi hikuðu stjórnvöld við að eiga of mikið undir vald-
höfum í kreml.43
guðni th. jóhannesson42
neytis, utanríkisráðherra í Washington og fleiri, 7. október 2008, https:
//wikileaks.org/plusd/cables/08ReykJAvIk219_a.html; van voorst (Reykja -
vík) til viðskipta ráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðherra í Washing -
ton og fleiri, 8. október 2008, https://wikileaks.org/plusd/cables/08ReykJA
vIk223_a.html.
38 Samantekt um það má sjá í Guðni Th. Jóhannesson, Hrunið. Ísland á barmi
gjaldþrots og upplausnar (Reykjavík: JPv 2009), bls. 159.
39 WikiLeaks. van voorst (Reykjavík) til fjármálaráðuneytis, utanríkisráð herra í
Washington og fleiri, 20. október 2008, 18:00, https://wikileaks.org/plusd/
cables/08ReykJAvIk242_a.html.
40 Guðni Th. Jóhannesson, Hrunið, bls. 167−168.
41 Sjá t.d. valur Ingimundarson, Í eldlínu kalda stríðsins. Samskipti Íslands og Banda -
ríkjanna 1945−1960 (Reykjavík: vaka-Helgafell 1996), bls. 141−178 og 404−408.
42 WikiLeaks. Rubin (Moskvu) til fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og fleiri,
9. okt. 2008, 14:26, https://wikileaks.org/plusd/cables/08MoSCoW3010
_a.html.
43 WikiLeaks. van voorst (Reykjavík) til fjármálaráðuneytis, utanríkisráðherra í
Washington og fleiri, 20. október 2008, 18:00, https://wikileaks.org/plusd/
cables/08ReykJAvIk242_a.html.
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 42