Saga - 2014, Síða 64
Hér fetar Pomian að miklu leyti í fótspor Maurice Halbwachs, þó að
áherslan sé hér á skynjunina sem kveikju minninganna og sé því
einnig sótt til forvera Halbwachs, svo sem Bergsons (sem var
kennari Halbwachs) og skáldsins Proust en þeir einbeittu sér að ein-
staklingnum og sjálfstæðum minningum hans. Halbwachs áleit hins
vegar að einstaklingsminningar felldu sig jafnan að „félagslegri
umgjörð minnisins“ (fr. cadres sociaux de la mémoire) og þessi
félagslega umgjörð væri einkum mótuð af fjölskyldunni og öðrum
hópum sem einstaklingurinn tilheyrir, vinahópum, skólafélögum
o.s.frv.5 Þessi félagslega vídd minninganna er meginframlag
Halbwachs og varðar bæði tilkomu þeirra og varðveislu.
Halbwachs leit svo á að einstaklingsminning styddist oft við
minningar annarra af sömu atburðum og fortíð, að hún væri alltaf í
samhengi við annað fólk og því félagsleg í kjarna sínum, og til þess
að hún gæti gegnt hlutverki sínu þyrfti að nota orð og hugmyndir
sem einstaklingurinn hefði ekki fundið upp sjálfur.6 einstaklings -
minningarnar eru því blanda af sannanlegri eigin reynslu og því
sem gefst í umhverfinu:
þorsteinn helgason62
að hluta til er mótuð af félags-
legu umhverfi — og heimsins
sem skynjaður er og lýtur ávallt
ákveðnum formgerðum. Hún
verður heldur ekki greind frá
hugsuninni, átrúnaði, viðhorf-
um sem einstaklingurinn drekk-
ur í sig í félagsmótuninni og
verða þáttur í sjálfsvitund hans.
tuel et affectif façonné pour une part
par son environnement social — et
du monde qu’il perçoit et qui possè-
de toujours une certaine structure.
elle ne se laisse pas séparer de la
pensée, des croyances, des attitudes
intériorisées par l’individu au cours
de sa socialisation au point de s’inté-
grer dans son identité même.4
… endurminningin er að mjög
miklu leyti endursköpun fortíð -
ar fyrir tilstilli þess sem fyrir
hendi er í nútímanum og raun-
… le souvenir est dans une très large
mesure une reconstruc tion du passé
à l’aide de données empruntées au
présent, et préparée d’ailleurs par
4 krzysztof Pomian, Sur l’histoire, bls. 272.
5 Maurice Halbwachs, „The Social Frameworks of Memory“, On Collective
Memory. Ritstj. Lewis A. Coser (Chicago & London: The University of Chicago
Press 1992), bls. 37–189.
6 Maurice Halbwachs, La mémoire collective (Université du Québec à Chicoutimi
2001 [fyrsta útgáfa 1950, eftir handriti frá um 1929]), http://classiques.uqac.ca/
classiques/Halbwachs_maurice/memoire_collective/memoire_collective.pdf,
bls. 26.
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 62